2. október 2026

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi

Kjörbúðin Blönduósi leitar umsjónarmanni bakarís, en um er að ræða 50% starf, vinnutími frá 8:00-12:00. Starfið krefst þess að starfsmaður vinni sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og geti auk þess forgangsraðað verkefnum.

Kjörbúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með bakaríi - bakstur
  • Utanumhald um gæði bakarís
  • Áfyllingar á vörum
  • Pantanir á vörum
  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Almenn verslunarstörf


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sjálfstæði
  • Snyrtimennska
  • Rík þjónustulund
  • Skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur
  • Íslenskukunnátta skilyrði


Fríðindi í starfi

- Heilsustyrkur 

- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa

- Velferðaþjónusta til starfsmanna


Sótt um hér


Frekari upplýsingar veitir Hrefna Björg Ásmundsdóttir verslunarstjóri, hrefna.asmundsdottir@kjorbudin.is


Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.

Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.

Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.