18. september 2026

Pósturinn á Blönduósi - bílstjóri

Pósturinn á Blönduósi leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum einstaklingi í starf bílstjóra. Viðkomandi sér um afhendingu pakka og dreifingu bréfa á Blönduósi og Skagaströnd ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.


Unnið er útfrá Blönduósi og vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-14:22.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf er skilyrði
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Sterk ábyrgðartilfinning
  • Almenn tölvukunnátta


Sótt er um hér.

Öllum umsóknum er svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 25. september og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Erla Ísafold Sigurðardóttir rekstrarstjóri, í tölvupósti - erlasi@postur.is. 

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.