2. október 2026
Organistastaða laus við Hvammstangakirkju
Í Húnavatnsprestakalli er helgihald allt árið og þar eru þrír prestar starfandi. Sóknarprestur með starfsstöð á Hvammstanga, prestur með starfsstöð á Blönduósi og prestur með starfsstöð á Skagaströnd. Organisti við Hvammstangakirkju starfar með sóknarpresti á Hvammstanga vegna helgihalds í Húnaþingi vestra.
Organistastarfið felst annars vegar í kórstjórn; að undirbúa kóræfingar, þjálfa kirkjukór vikulega yfir vetratímann og stýra kirkjukór í helgihaldi og hins vegar orgelleikur við helgihald í kirkjum í Húnaþingi vestra, þó fyrst og fremst Hvammstangakirkju. Undirbúningur fyrir messur fer fram í samstarfi við sóknarprest, sem skipuleggur helgihald og safnaðarstarf, en ráðningarsamband er við sóknarnefnd Hvammstangakirkju.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Orgelleikur og kórstjórn á kóræfingum og við helgihald í Hvammstangakirkju, í öðrum kirkjum héraðsins og í kapellu HVE Hvammstanga.
- Önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfskyldna og starfshlutfalls.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kostur að umsækjandi hafi lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegu prófi í kirkjutónlist.
- Umsækjandi hafi reynslu af tónlistarflutningi við helgihald og kórstjórn.
- Umsækjandi hafi gaman af fjölbreyttu helgihaldi, sé hugmyndaríkur og vilji viðhalda og efla tónlistarstarf í söfnuðinum.
- Umsækjandi hafi færni í samskiptum, getu til að vinna í hóp og hæfni til að starfa sjálfstætt.
Sótt um hér