Fréttir

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir • 2. október 2026
10. haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á Hótel Laugarbakka 1. október.
Eftir Berglind SSNV • 30. september 2026
Kynningarfundur um lánamöguleika Svanna-lánatryggingasjóðs verður í hádeginu í dag, miðvikudaginn 30. september, kl.12.00 á Teams. Hér að neðan má finna viðburð á Facebook þar sem nálgast má fundarhlekk. https://fb.me/e/4M31sMbd5
Eftir Berglind SSNV • 23. september 2026
Veggjalist í Vatnahverfi er eitt fjölmargra verkefna sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.
Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir • 18. september 2026
Kalla eftir opnu samtali og meiri kynfræðslu fyrir ungt fólk á Norðurlandi vestra 
Eftir Guðlaugur Skúlason • 15. september 2026
14 fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni.
Eftir Guðlaugur Skúlason • 15. september 2026
Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra 16. september . SSNV hvetur einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir með hugmyndir að verkefnum til að kynna sér tækifærin sem sjóðurinn býður upp á. Sjóðurinn styður við atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, menningar- og samfélagsverkefni og veitir auk þess stofn og rekstrarstyrki til stofnana á sviði menningarmála á Norðurlandi vestra og gegnir þannig mikilvægu hlutverki í að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Í síðustu úthlutun, vegna verkefna ársins 2026, var rúmum 76 milljónum króna úthlutað til uppbyggingar í landshlutanum.
Eftir Sara Björk Þorsteinsdóttir • 14. september 2026
Ungmennaþing um ofbeldi í nánum samböndum ungs fólks Samstarf Barnaheilla, SSNV og Öruggara Norðurlands vestra
Eftir Berglind SSNV • 11. september 2026
Ungt fólk á aldrinum 16-25 ára er hvatt til að sækja um þátttöku í norrænu Erasmus+ verkefni
Eftir Berglind SSNV • 11. september 2026
Fram undan eru tveir kynningarfundir um lánamöguleika Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna , og eru konur með viðskiptahugmyndir eða fyrirtæki hvattar til að kynna sér þau tækifæri sem sjóðurinn býður upp á. Fimmtudaginn 10. september verður kynningarfundur hjá Landsbankanum við Reykjastræti í Reykjavík. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á Facebook-viðburðinum . Mánudaginn 14. september verður síðan kynningarfundur um sjóðinn hjá Drift á Akureyri. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburðinum . SSNV hvetur konur á Norðurlandi vestra sem eru að þróa viðskiptahugmyndir, stofna fyrirtæki eða vinna að vexti fyrirtækja sinna til að kynna sér möguleika Svanna og nýta tækifærið til að fræðast um þá fjármögnun sem sjóðurinn býður upp á.
Show More