22. september 2026

Bifvélavirki -Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki

Bifreiðaverkstæði KS óskar eftir að ráða bifvélavirkja í fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Bilanagreining og mat á nauðsynlegum aðgerðum

Almennar viðgerðir á bifreiðum, lyfturum, dráttarvélum, vörubílum og öðrum tækjum

Reglubundnar viðhaldsskoðanir og eftirlit


Menntunar- og hæfniskröfur

Sveinspróf/meistarapróf í bifvélavirkjun

Góð almenn tölvukunnátta

Gilt bílpróf

Vönduð og öguð vinnubrögð

Jákvæðni og þjónustulund

Góð hæfni í mannlegum samskiptum


Fríðindi í starfi

Íþrótta- og heilsustyrkur


Sótt er um starfið hér.


Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hvetjum alla áhugasama til að sækja um, óháð kyni.

Allar nánari upplýsingar veitir Tryggvi Pálsson í síma 863-6101 eða í netfangi tryggvi.palsson@ks.is