Sóknaráætlun

Ný Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2025-2029 hefur verið samþykkt á haustþingi SSNV og tekur hún gildi í janúar 2025. Með nýrri sóknaráætlun fyrir Norðurland vestra fyrir árin 2025-2029, sjáum við fyrir okkur framtíð þar sem samfélagið okkar getur vaxið, dafnað og byggt á sínum styrkleikum. Sóknaráætlunin okkar er ekki einungis verkfæri fyrir áhersluverkefni svæðisins heldur einnig leiðarljós sem byggir á meginmarkmiðum byggðaáætlunar, landsskipulagsstefnu, menningarstefnu og annarri opinberri stefnumótun. Samningar um nýja sóknaráætlun voru undirritaðir 28. janúar 2025.

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, samþykkti á vormánuðum 2024 að ráða samskiptafyrirtækið Aton til að veita ráðgjöf og aðstoð við gerð nýrrar sóknaráætlunar. í ferlinu voru gögn um stöðu landshlutans rýnd og gerð úttekt á markmiðum og árangri fyrri sóknaráætlunar. Netkönnun var send til kjörinna fulltrúa og viðtöl tekin við ólíka aðila úr samfélaginu, svo sem úr atvinnulífi, stofnunum, mennta- og menningarmálum, haldnar voru þrjár opnar vinnustofur og ungmennaþing til að tryggja aðkomu fjölbreyttra hópa að stefnumótunarferlinu. Það er þessi sameiginlegi kraftur sem hefur mótað hina vönduðu og vel unnu sóknaráætlun sem við höfum í dag.

Opnar vinnustofur voru haldnar á eftirfarandi stöðum:


  • Félagsheimilið á Hvammstanga - 20. ágúst 
  • Félagsheimilið á Blönduósi - 21. ágúst 
  • Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði - 22. ágúst

 


Stefnuáherslur á vinnustofum voru: 


- Samstaða, jákvæðni og bjartsýni – Drifkraftur íbúa mótar samfélagið.


- Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf – Öflugt atvinnulíf styður við lífsgæði á svæðinu.


- Góður staður til að búa á – Blómlegt menningarlíf og fjölskylduvænt samfélag.


-  Landshluti í sjálfbærri uppbyggingu – Samfélag í forystu í umhverfismálum.