2. október 2026

Íþróttamiðstöðin á Blönduósi - kvenkyns sundlaugarvörður.

Laus er til umsóknar 100% staða konu sem sundlaugarvörður við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Um er að ræða starf sem unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaplani. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.


Helstu verkefni og ábyrgð

·        Öryggisgæsla

·        Baðvarsla í klefum

·        Afgreiðsla og þjónusta við gesti

·        Þrif


Menntunar- og hæfniskröfur

·        Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.

·        Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna.

·        Reglusemi.

·        Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.

·        Sjálfstæð vinnubrögð.

·        Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

·        Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.


Sótt um hér


Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.

 

Nánari upplýsingar gefur Katrín Benediktsdóttir í síma 455-4700 og í tölvupósti á netfangið katrin@hunabyggd.is.