Ertu með hugmynd?

Ertu með hugmynd en veist ekki alveg hvernig best er að hrinda henni í framkvæmd? Viltu vera þinn eigin/n yfirmaður? Viltu skapa þér tækifæri þar sem þú vilt búa?

Ýmis verkfæri eru til fyrir þá sem hafa hug á að fara af stað með viðskiptahugmynd.

  • Nýsköpunarmiðstöð gaf út leiðarvísi fyrir frumkvöðla með fyrstu skrefunum sem þarf að hafa í huga.
  • Í október á síðasta ári stóðu samtökin fyrir viðburðinum Ertu með hugmynd. Þar sem Haukur Guðjónsson hjá Frumkvöðlar.is, Sunna Halla Einarsdóttir hjá Icelandic Startups og Esther Ágústsdóttir hjá Kakalaskála fluttu erindi um hvernig sé hægt að koma hugmyndinni sinni í framkvæmd, um fjármögnun og önnur hagnýt ráð. Upptöku af viðburðinum er að finna hér.
  • Atvinnuráðgjafar SSNV veita frumkvöðlum aðstoð á öllum stigum. Hægt er að bóka tíma hjá ráðgjafa hér.