Úrgangsmál á Norðurlandi

Miðvikudaginn 1. apríl 2020 kl 13.00-16.30 var blásið til vefráðstefnu um úrgangsmál í breiðum skilningi. Ráðstefnan var lokahnykkurinn á störfum starfshóps Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem hafði til skoðunar framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi. Í vinnu hópsins var fjallað um úrgangsmál svæðiðsins og m.a. greindir úrgangsstraumar og tækifæri til að ná auknum árangri og hagræðingu í þessum viðamikla málaflokki. Á ráðstefnunni voru haldin fjölmörg áhugaverð erindi, m.a. um niðurstöður greiningar á úrgangsmálum á Norðurlandi, útflutning á sorpi, afsetningu lífræns úrgangs, úrgangsstjórnun hjá fyrirtækjum, líforkuver, smartvæðingu sorps, hringrásarhagkerfið, sjónarhorn sveitarfélags og fyrirtækis sem hafa náð árangri í úrgangsmálum o. fl. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra opnaði ráðstefnuna.


Verkefnið var samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og var stutt af sóknaráætlunum beggja landshluta.

 

13:00 Ávarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisog auðlindaráðherra.

13:15 Getum við gert betur? staða og framtíð sorpmála á Norðurlandi. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings.

13:40 Er útflutningur sorps raunhæfur möguleiki? Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins.

14:00 Afsetning lífræns úrgangs. Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska.

14:20 Nýjar leiðir í endurvinnslu á plasti. Áslaug Hulda Jónsdóttir, Pure North

14:40 Líforkuver - raunhæfur kostur? Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku.

15:00 Hlé.

15:10 Er verið að gera eitthvað nýtt í úrgangsmálum á Íslandi? Karl Eðvaldsson, forstjóri ReSource International ehf.

15:30 Aðkoma sveitarfélaga að innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Eygerður Margrétardóttir, sérfræðingur, Sambandi ísl. sveitarfélaga.

15:50 Meðhöndlun sorps hjá Brim. Torfi Þ. Þorsteinsson, forstöðmaður samfélagstengsla.

16:10 Árangursríkt sorpkerfi á Akureyri Rut Jónsdóttir, forstöðumaður hjá Akureyrarbæ.

16:30 Ráðstefnulok.

 

Ráðstefnustjóri var Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings.