Samþykktir og þingsköp

Hér má lesa samþykktir og þingsköp Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Núgildandi samþykktir og þingsköp SSNV tóku gildi 15. október 2025.

Smelltu á kafla hér fyrir neðan til að opna hann, eða sæktu skjalið í heild.


Sækja samþykktir og þingsköp í heild (PDF)

  • 1. Markmið og hlutverk

    1.1

    Samtökin nefnast Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, skammstafað SSNV. Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, allt frá Almenningsnöf í austri að Stikuhálsi milli Bitru og Hrútafjarðar í vestri. Heimili og varnarþing samtakanna er á skrifstofu SSNV á Hvammstanga.

    Öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra eru aðilar að SSNV. Verði breyting á sveitarfélagamörkum og nöfnum sveitarfélaga með sameiningu sveitarfélaga halda hin sameinuðu sveitarfélög aðild að SSNV án sérstaks uppgjörs eða meðhöndlunar sem um úrsögn væri að ræða. Óski sveitarfélag/sveitarfélög utan starfssvæðis eftir inngöngu er það ekki heimilt nema með samþykki allra aðildarsveitarfélaga SSNV.


    1.2

    SSNV eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og starfa með tilvísun til 97. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

    Markmið þeirra og hlutverk er að vinna að verkefnum sem sveitarfélögin eða löggjafinn fela þeim og hafa samvinnu um tiltekna málaflokka á grundvelli samninga við ríkið. Megináhersla er lögð á eftirfarandi verkefni:

    • Sinna sameiginlegum hagsmunamálum aðildarsveitarfélaganna.
    • Gæta sameiginlegra hagsmuna aðildarsveitarfélaganna, um mál skv. ákvörðunum þinga og mál sem falla að samþykktum SSNV.
    • Þjónusta aðildarsveitarfélögin við sameiginleg verkefni.
    • Stuðla að samvinnu og auka þekkingu sveitarstjórnarmanna á starfssvæðinu.
    • Styrkja stöðu aðildarsveitarfélaganna á landsvísu.
    • Stuðla að eflingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra.

    SSNV skal starfa í samvinnu við önnur landshlutasamtök sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra aðila eftir því sem hagsmunir bjóða hverju sinni og við verður komið.

    Stjórn SSNV getur með samþykki aðildarsveitarfélaga stofnað til byggðasamlags eða annars rekstrar með öðrum landshlutasamtökum um verkefni sem ná út fyrir starfssvæði samtakanna.

  • 2. Um þing SSNV

    2.1

    Öll löglega boðuð þing SSNV hafa sama umboð til umfjöllunar og ákvarðana er varða málefni samtakanna.

    Þing SSNV fara með æðsta vald í málefnum samtakanna Ársþing skal haldið að vori, fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Það ár sem sveitarstjórnarkosningar fara fram skal haldið aukaársþing sem fyrst að afloknum kosningum, eigi síðar en 15. júlí.

    Stjórn SSNV skal halda haustþing um hagsmunamál sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra í októbermánuði ár hvert. Stjórn SSNV er heimilt að bjóða til haustþingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétt.

    Á haustþingi skal leggja fram fjárhagsáætlun, þ.m.t. ákvörðun um árgjöld, starfsáætlun samtakanna fyrir komandi ár, og tillögum að ályktunum og öðrum erindum sem stjórnin leggur fyrir þingið.


    2.2

    Aukaþing skal boða ef þörf krefur að mati stjórnar eða ef a.m.k. tvö aðildarsveitarfélög óska þess. Aukaþing skal boðað skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og skal fundarefni tilgreint. Aukaþing skal haldið innan tveggja mánaða frá því beiðni um það barst.


    2.3

    Stjórn SSNV boðar sveitarfélög og þingfulltrúa á þing með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara. Boð á aukaársþing skal berast nýkjörnum sveitarstjórnum með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.


    2.4

    Stjórn SSNV semur dagskrá þinga. Endanleg dagskrá þinganna skal send þingfulltrúum eigi síðar en einni viku fyrir hvert þing, ásamt öllum viðeigandi gögnum og erindum sem stjórnin leggur fyrir þingið hverju sinni. Erindi sem þingfulltrúar óska eftir að verði rædd á þingi hverju sinni þurfa að hafa borist stjórn SSNV skriflega a.m.k. tíu dögum fyrir þing.


    2.5

    Þegar kosið er til þinga og á þingum SSNV, til að manna stjórn og nefndir á vegum þeirra, skal leitast við að fylgja 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

    Á ársþingi skulu tekin fyrir þessi mál:

    • skýrsla stjórnar og starfsmanna um starfsemi rekstrareininga sem SSNV ber ábyrgð á.
    • afgreiðsla ársreikninga ásamt skýrslu endurskoðanda um þær rekstrareiningar sem SSNV ber ábyrgð á.
    • laun og þóknun til stjórnar og nefnda.
    • ákvörðun um fundarstaði þinga á komandi ári .
    • önnur löglega fram borin mál.

    Á aukaársþingi að afloknum sveitarstjórnarkosningum skal fara fram:

    • kosning formanns.
    • kosning fjögurra manna í aðalstjórn.
    • kosning fimm manna í varastjórn.

    Á fyrsta haustþingi að afloknum sveitarstjórnarkosningum skal fara fram:

    • kosning endurskoðanda.

    Á ársþingi á miðju kjörtímabili skal auk hefðbundinnar dagskrár fara fram:

    • kosning formanns.
    • kosning fjögurra manna í aðalstjórn.
    • kosning fimm manna í varastjórn.
    • kosning endurskoðanda.

    Skipan í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs er samkvæmt grein 5.4.

    Að öðru leyti er heimilt að haga þingstörfum á þann veg að þjóni tilgangi þingsins og dagskrárefni sem best, t.d. með því að hafa hluta þingsins í formi vinnufundar, kjósa sérstakar starfsnefndir utan hinna föstu starfsnefnda þingsins, o.s.frv.


    2.6

    Þing eru lögmæt ef löglega er til þeirra boðað og 2/3 kjörinna þingfulltrúa eru mættir.


    2.7

    Þingsköp fyrir SSNV kveða nánar á um starfshætti þinga samtakanna.

  • 3. Um kosningar til þinga SSNV

    3.1

    Á þingum SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna, sem hér segir: Einn fulltrúi fyrir hvert sveitarfélag á starfssvæðinu, auk eins fulltrúa fyrir hverja byrjaða 400 íbúa í sveitarfélaginu. Miða skal við íbúafjölda sveitarfélags þann 1. janúar á því ári sem þing er haldið.


    3.2

    Að afloknum sveitarstjórnarkosningum skulu sveitarstjórnir kjósa fulltrúa á þing SSNV. Kjörgengir eru aðal- og varamenn í sveitarstjórnum og sveitarstjórar sveitarfélaga. Þegar kosið er til þinga SSNV, á þingum samtakanna, í stjórn og í nefndir á vegum þeirra skal leitast við að fylgja 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.


    3.3

    Sveitarstjórnir skulu tilkynna stjórn SSNV nöfn kjörinna þingfulltrúa, aðal- og varamanna fyrir 1. mars ár hvert vegna ársþings, fyrir 1. júlí vegna aukaársþings að afloknum sveitarstjórnarkosningum og fyrir 1. september ár hvert vegna haustþings.


    3.4

    Komi í ljós að hvorki aðal- né varafulltrúi geti setið þing, er sveitarstjórn heimilt að tilnefna annan fulltrúa til setu á viðkomandi þingi, með sömu réttindum og kjörnir fulltrúar.


    3.5

    Sveitarstjórar sveitarfélaga eiga seturétt á þingum SSNV með málfrelsi og tillögurétt séu þeir ekki hluti þingfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.

    Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á þingum með heimild til að ávarpa þingið.


    3.6

    Þing SSNV eru opin til áheyrnar kjörnum aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórnum, starfsmönnum sveitarfélaga, starfsmönnum SSNV og fulltrúum tengdra verkefna á Norðurlandi vestra.

    Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þings hverju sinni gestum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti.

  • 4. Um kosningar á þingum SSNV

    4.1

    Stjórn SSNV skal skipuð fimm mönnum og jafnmörgum til vara. Skal hún kosin samkvæmt gr. 2.5. Formaður skal kosinn sérstaklega á sama þingi. Stjórn skiptir með sér verkum að öðru leyti. Formaður getur ekki setið lengur en fjögur ár samfleytt.

    Kjörgengir til stjórnarkjörs eru þeir sem eru kjörgengir til setu á þingum SSNV. Sá sem kjörinn hefur verið aðalmaður í stjórn þrjú kjörtímabil í röð, þ.e. sex ár, er ekki kjörgengur til stjórnar næstu tvö ár.

    Miða skal við að stjórn sé skipuð tveimur fulltrúum úr Skagafirði, einum frá Skagaströnd, einum frá Húnabyggð og einum frá Húnaþingi vestra. Varastjórn sem og aðrar fimm manna nefndir SSNV séu skipaðar með sama hætti. Kjörtímabil formanns er tvö ár.

    Framboð til formanns, stjórnar og fastanefnda skulu hafa borist kjörnefnd tíu dögum fyrir þing.


    4.2

    Á þingum SSNV er, sbr. lið 2.5, kosið í fastar nefndir og aðrar nefndir sem þing kann að ákveða. Þegar skipað er í nefndir skal hlutverk og umboð nefndarinnar vera skýrt og fyrirliggjandi starfsreglur þar sem það á við.


    4.3

    Stjórn SSNV kýs fimm manna kjörnefnd og skipar jafnframt formann nefndarinnar eigi síðar en 1. mars ár hvert. Nefndin er jafnframt kjörbréfanefnd þinga SSNV.

    Fyrir aukaársþing eftir sveitarstjórnakosningar skal kjörnefnd skipuð, eigi síðar en 1. júlí. Skal kjörnefndin vinna í samræmi við starfsreglur um hana og samþykktir SSNV.


    4.4

    Ef aðal- eða varamaður þarf að láta óvænt af störfum í stjórn eða nefnd á kjörtíma sínum er sveitarfélagi fulltrúans heimilt að samþykkja í sveitastjórn nýjan aðila í hans stað og tekur hann þá umsvifalaust sæti þess sem fór og gildir það fram að næsta þingi þegar kosið verður um stjórn/nefnd samkvæmt samþykktum SSNV.

  • 5. Um stjórn SSNV og framkvæmdastjóra

    5.1

    Stjórn SSNV, nefndir á vegum samtakanna og starfsfólk þeirra starfa samkvæmt samþykktum þessum. Stjórn er, ásamt framkvæmdastjóra, málsvari samtakanna milli ársþinga. Stjórn tekur til starfa strax að loknu kjöri. Um umboð fráfarandi stjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum og þar til ný stjórn tekur til starfa gilda ákvæði um umboð sveitarstjórna í 12. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 138/2011.


    5.2

    Stjórn SSNV fer með yfirstjórn á rekstri samtakanna og heldur fundi svo oft sem þurfa þykir. Stjórnin undirbýr mál fyrir þing og leggur m.a. fram endurskoðaða reikninga samtakanna og gerir tillögu um fjárhagsáætlun næsta reikningsárs. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.


    5.3

    Stjórn ræður framkvæmdastjóra og gerir við hann skriflegan ráðningarsamning. Framkvæmdastjóri ræður annað starfsfólk í samráði við stjórn.


    5.4

    Stjórn SSNV skipar sex fulltrúa í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs til tveggja ára, þar af einn sem formann úthlutunarnefndar, þá skipar stjórn jafnframt tvo varamenn. Formaður SSNV leggur fram tillögu um 10 manns í úthlutunarnefnd sem stjórnin hefur til hliðsjónar. Gæta skal að jöfnustum hlut kynja við skipan úthlutunarnefndar og nefndin sé sett saman af einstaklingum, sem hafa breiða fagþekkingu og bakgrunn innan menningar-, atvinnu- og nýsköpunar, óháð búsetu.

    Hlutverk úthlutunarnefndar er yfirferð umsókna um styrki til Uppbyggingarsjóðs og val á verkefnum, á grundvelli faglegs mats, sem styrkt verða í samræmi við Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Við úthlutun styrkja skal gæta jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða. Falli atkvæði jöfn skal atkvæði formanns ráða úrslitum.


    5.5

    Framkvæmdastjóri er yfirmaður annars starfsfólks samtakanna. Hann skal sjá um að stjórnsýsla samtakanna samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum stjórnar eða ársþings.

    Framkvæmdastjóri skal sitja fundi stjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem starfa á vegum samtakanna nema sérstakar aðstæður hamli því.

    Framkvæmdastjóri leggur tillögu að fjárhagsáætlunum fyrir stjórn innan þeirra tímamarka sem sett eru um afgreiðslu þeirra og undirbýr framlagningu fjárhagsáætlunar fyrir haustþing.

    Framkvæmdastjóri skal sjá um að fundir stjórnar og nefnda á vegum samtakanna séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir stjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi stjórn ekki falið það öðrum.

    Framkvæmdastjóri er prókúruhafi samtakanna. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni samtakanna prókúru að fengnu samþykki stjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

    Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi allar fjárhagslegar skuldbindingar, lántökur og ábyrgðir eða ráðstafanir sem samþykki stjórnar þarf til.

    Í fjarveru framkvæmdastjóra er formaður stjórnar staðgengill hans nema stjórn hafi gert aðrar ráðstafanir.


    5.6

    Framkvæmdastjóri skal að jafnaði boða stjórnarfundi í samráði við formann og stilla upp dagskrá stjórnarfunda.

    Hann boðar einnig til funda í nefndum á vegum samtakanna nema það sé sérstaklega falið öðrum. Telji formaður stjórnar eða nefndar að óeðlilegur dráttur sé á fundarboðun getur hann hlutast til um hana.

  • 6. Um árgjöld og kostnað

    6.1

    Haustþing ákveður heildarfjárhæð árgjalda sveitarfélaga við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir hvert fjárhagsár.

    Árgjaldafjárhæð skal skipt á milli sveitarfélaga eftir íbúafjölda miðað við 1. janúar þess árs sem þing er haldið.


    6.2

    Stjórn ákveður gjalddaga árgjalda og getur lagt fram tillögu um þá samhliða tillögu um fjárhagsáætlun. Dráttarvextir skulu greiddir af vangoldnum árgjöldum frá gjalddaga.


    6.3

    Kostnaður við stjórn samtakanna, þing, fundarhöld, ferðalög stjórnar og annar sameiginlegur kostnaður greiðist úr sameiginlegum sjóði. Hver sveitarstjórn greiðir ferðakostnað eigin fulltrúa á þing SSNV.

  • 7. Um úrsögn og slit

    7.1

    Kjósi sveitarfélag að hætta þátttöku í SSNV skal viðkomandi sveitarstjórn tilkynna það til stjórnar samtakanna fyrir árslok og verður úrsögnin virk við upphaf reikningsárs að tveimur árum liðnum. Samhliða getur sveitarfélag krafist innlausnar á nettó eignarhlut sínum í samtökunum núvirðisreiknuðum í samræmi við ákvæði samnings skv. 94. gr. sveitarstjórnarlaga.

    Ef ósætti rís um úrgöngu sveitarfélags gildir 95. gr. sveitarstjórnarlaga um meðferð málsins. Hið sama gildir vilji sveitarfélag hætta þátttöku í einstökum samstarfsverkefnum, nema reglur eða samningar um þau kveði á um annað.


    7.2

    Samtökin verða ekki lögð niður nema löglega boðað ársþing og aukaþing samþykki það með 2/3 hlutum atkvæða. Þingin skulu haldin með a.m.k. tveggja mánaða millibili. Tillaga að félagsslitum skal fylgja fundarboði. Áður en seinna þingið er haldið skal afstaða aðildarsveitarfélaga til félagsslitanna liggja fyrir. Til þess að slit á samtökunum nái fram að ganga þurfa 2/3 hlutar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga að staðfesta þau. Að öðru leyti fer um slit á samtökunum skv. ákvæðum 95. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

  • 8. Um breytingar á samþykktum og gildistöku

    8.1

    Tillögur til breytinga á samþykktum skulu sendar stjórn samtakanna a.m.k. þremur vikum fyrir ársþing. Tillögur til breytinga skulu fylgja dagskrá boðaðs ársþings, sbr. grein 2.4.


    8.2

    Breyting á samþykktum telst samþykkt ef 2/3 mættra þingfulltrúa samþykkja hana á lögmætum þingfundi.


    8.3

    Samþykktum þessum var breytt á ársþingi SSNV 15. október 2025 og eru svo breyttar frá þeim degi.


    Viðaukar

    • Starfsreglur kjörnefndar SSNV
    • Starfsreglur úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra
  • Þingsköp: Um þing og stjórnun þings (1.–5. gr.)

    1. gr.

    Ársþing SSNV er aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Aukaársþing að afloknum sveitarstjórnarkosningum hefur sama umboð og ársþing til kjörs á nýrri stjórn. Haustþing er almennur samstarfsvettvangur sveitarfélaganna innan SSNV.


    2. gr.

    Um rétt til setu á þingunum fer eftir samþykktum SSNV.


    3. gr.

    Þingin skulu haldin samkvæmt samþykktum samtakanna að vori, ársþing fyrir lok apríl ár hvert, aukaársþing fyrir 15. júlí þau ár sem sveitarstjórnarkosningar eru haldnar og að hausti, sbr. grein 2.1. í samþykktum SSNV. Þá er fundarfært ef a.m.k. 2/3 þingfulltrúa er mættur. Stjórn semur dagskrá þeirra, heimilt er þingforseta að víkja frá dagskrá.


    4. gr.

    Formaður samtakanna eða annar í umboði hans setur þing. Hann skal gangast fyrir kjöri þingforseta og varaforseta, tveggja ritara og jafn margra til vara.


    5. gr.

    Þingforseti stjórnar fundi og sér um að þingstörf fari fram eftir góðri reglu. Sýni fulltrúi ókurteisi, hefur forseti leyfi til að taka af honum orðið og víta framkomu hans.

    Þingfulltrúum er skylt að hlíta úrskurði forseta, þó má skjóta úrskurði hans til þingsins, ef vafi leikur á skilningi á ákvæðum þingskapa.

  • Þingsköp: Hlutverk kjörnefndar (6. gr.)

    6. gr.

    Kjörnefnd kannar rétt þingfulltrúa til setu á þinginu og leggur fram skrá um réttkjörna þingfulltrúa til staðfestingar á þinginu.

    Kjörnefnd annast framkvæmd kosninga á þingum SSNV. Hún leggur fram tillögur um kjör til stjórnar, í fastanefndir og til annarra starfa, sbr. það sem fram kemur í gr. 2.5 í samþykktum samtakanna og þingið felur henni. Hún skal byggja tillögur sínar á þeim framboðum og tilnefningum sem hafa borist en jafnframt þeirri reglu sem fram kemur í gr. 4.1 í samþykktunum að stjórn skuli skipuð tveimur fulltrúum úr Skagafirði, einum frá Skagaströnd, einum frá Húnabyggð og einum frá Húnaþingi vestra. Komi ekki fram aðrar tillögur en frá kjörnefnd er stjórn sjálfkjörin.

    Komi fram beiðni á þingi um skriflega kosningu skal orðið við því. Í kjöri við skriflega kosningu eru þeir sem kjörnefnd gerði tillögu um og aðrir sem buðu sig fram eða tilnefndir voru tíu dögum fyrir þing eða fyrr. Þingfulltrúar skulu þá skrifa eitt nafn á kjörseðil við kosningu formanns og fjögur nöfn við kosningu annarra stjórnarmanna.

    Kjörseðill er ógildur ef:

    • fleiri nöfn eru árituð en heimilt er; hann telst hins vegar gildur þótt færri nöfn komi fram.
    • fleiri nöfn eru frá hverju svæði en kosið er um.

    Við talningu atkvæða skulu þeir tveir úr Skagafirði sem fengu flest atkvæði hljóta stjórnarsæti en einn ef formaður hefur verið kjörinn úr hópi fulltrúa þaðan. Sama gildir um þá sem flest atkvæði hlutu úr Húnabyggð, Skagaströnd og Húnaþingi vestra, hlýtur sá stjórnarsæti sem flest atkvæði fær enda hafi formaður ekki þegar verið kjörinn úr hópi þeirra fulltrúa.

    Sama regla gildir um kjör varamanna komi til skriflegrar kosningar um þá.

  • Þingsköp: Kosningar, tillögur og atkvæðagreiðsla (7.–13. gr.)

    7. gr.

    Á árs- og haustþingum, skal kjósa í fastar þingnefndir:

    • Fjárhagsnefnd, sem fjallar um ársreikning, fjárhagsáætlanir og annað sem varðar fjármál samtakanna.
    • Stjórnskipulagsnefnd, sem fjallar um samþykktir, þingsköp, starfsreglur og annað sem varðar stjórnskipulag samtakanna.
    • Allsherjarnefnd, sem fjallar um ályktanir hvers þings og þau mál sem varða markmið og almenn verkefni samtakanna.

    Auk þessara nefnda getur þingið ákveðið að setja nefndir um sérstök mál eða málaflokka til starfa á þinginu eða milli þinga.

    Heimilt er að haga svo kjöri í þingnefndir að fulltrúar velji sjálfir þá nefnd sem þeir vilja starfa í. Enginn þingfulltrúi má sitja nema í einni þingnefnd.


    8. gr.

    Málum sem bárust þingfulltrúum með þinggögnum skal vísað til nefndar eftir eðli þeirra. Rísi ágreiningur um til hverrar nefndar máli skuli vísað sker þingfundur úr.


    9. gr.

    Afl atkvæða ræður úrslitum mála. Séu atkvæði jöfn er mál fallið, en um kosningar ræður hlutkesti. Afgreiðsla máls telst ekki ályktun þingsins nema meira en helmingur viðstaddra fulltrúa greiði því atkvæði.


    10. gr.

    Þegar forseti vill taka þátt í umræðu víkur hann sæti en varaforseti gegnir þá forsetastörfum.


    11. gr.

    Fulltrúar skulu taka til máls úr ræðustóli. Þó getur forseti leyft stuttar fyrirspurnir frá fulltrúa úr sæti sínu. Fulltrúar skulu beina máli sínu til forseta. Forseti skal sjá um að fulltrúar taki til máls í réttri röð eftir því sem þeir hafa beðið um orðið. Þó getur hann vikið frá þeirri reglu við framsögumenn, formann samtakanna og framkvæmdastjóra, eða til að fulltrúi geti gert stutta athugasemd eða leiðréttingu. Enginn fulltrúi má í ræðu sinni lesa prentað mál, nema með leyfi forseta.


    12. gr.

    Enginn fulltrúi má taka oftar til máls en tvisvar sinnum við sömu umræðu í hverju máli en þó skulu flutningsmenn mála, framsögumenn meirihluta og minnihluta nefnda svo og formaður samtakanna og framkvæmdastjóri, hafa rétt til að taka oftar til máls. Forseta er heimilt að takmarka ræðutíma, ef ástæða þykir til.


    13. gr.

    Forseta er skylt að bera undir atkvæði hvort umræðu skuli hætt, ef fimm fulltrúar eða fleiri æskja þess skriflega.

  • Þingsköp: Afgreiðsla og breytingar þingskapa (14.–16. gr.)

    14. gr.

    Tillögur til breytinga á þingsköpum skulu sendar stjórn samtakanna a.m.k. þremur vikum fyrir þing. Tillögur til breytinga skulu fylgja dagskrá boðaðs þings, sbr. grein 2.4.

    Komi fram breytingartillaga á þingi við útsendar tillögur til breytinga á samþykktum og/eða þingsköpum skal þingforseti úrskurða hvort umrædd tillaga sé viðaukatillaga við fyrirliggjandi aðaltillögu, breytingartillaga eða ný tillaga.

    Viðaukatillaga telst sjálfstæð viðbót við aðaltillöguna og skal bera hana upp á eftir aðaltillögu. Áskilnaður um 2/3 hluta gildir um viðaukatillöguna enda leiðir hún til breytinga á samþykktum eða þingsköpum.

    Breytingartillaga er borin upp á undan aðaltillögu og gildir þar almennt að afl atkvæða ráði niðurstöðu.

    Breytingartillagan telst ekki sjálfstæð þar sem það er aðaltillagan svo breytt sem leiðir til breytinga á samþykktum eða þingsköpum.

    Komi fram ný tillaga um breytingu á samþykktum eða þingsköpum þarf þingforseti að leita afbrigða til þess að hún komist á dagskrá. Tillögur um afbrigði þurfa samþykki 2/3 hluta mættra þingfulltrúa til þess að ná fram að ganga.


    15. gr.

    Breyting á þingsköpum telst samþykkt ef 2/3 mættra þingfulltrúa samþykkja hana á lögmætum þingfundi.


    16. gr.

    Þingsköpum þessum var breytt á auka ársþingi SSNV þann 15. október 2025 og eru svo breytt frá þeim degi.