10. haustþing SSNV
10. haustþing SSNV var haldið á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra fimmtudaginn 1. október 2026. Á haustþingi eru lögð fram fjárhags- og starfsáætlun samtakanna fyrir komandi ár og ályktanir um hagsmunamál sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra.
Gögn þingsins
Ályktanir haustþings SSNV 2026 (PDF)
Samþykktir og þingsköp SSNV – 1. október 2026 (PDF)
Fjárhagsáætlun SSNV 2027 – samantekt (PDF)
Þinggjörð haustþingsins verður birt hér þegar hún liggur fyrir.
Ályktanir þingsins
Haustþingið samþykkti ályktanir um eftirfarandi mál:
- Hækkun kílómetragjalds á ökutæki og eldsneytisskatta
- Samgöngu- og innviðamál – vegir, fjarskipti, raforka og hafnir
- Breytingar á kosningalögum – fækkun þingmanna Norðvesturkjördæmis úr 7 í 6
- Skerðingu á framlögum til landshlutasamtaka – sóknaráætlanir og atvinnuþróun
Dagskrá – fimmtudagur 1. október 2026
14:00 – Þingsetning
Magnús Magnússon, formaður stjórnar SSNV
Kosning þingforseta, varaforseta, tveggja ritara og tveggja vararitara
14:10 – Kjörnefnd kannar lögmæti þingsins
14:15 – Fjárhags- og starfsáætlun SSNV fyrir árið 2027
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
14:30 – Ávörp gesta
Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
Ólafur Adolfsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis
15:30 – Störf nefnda
Fjárhagsnefnd fjallar um fjárhagsáætlun SSNV 2027. Allsherjarnefnd fjallar um starfsáætlun SSNV 2027 og ályktanir þingsins. Stjórnskipulagsnefnd fjallar um samþykktir SSNV.
Kaffi
16:00 – Erindi
Almenn kynning á starfsemi SSNV – Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
Eimur – Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærrar viðskiptaþróunar
Áfangastaðastofa Norðurlands – Halldór Óli Kjartansson, staðgengill framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands
17:00 – Afgreiðsla nefndarálita
17:50 – Kosningar
Kosning endurskoðanda
18:00 – Þingslit og sameiginlegur kvöldverður í boði SSNV
Ræður og skýrslur
Setningarávarp formanns – Magnús Magnússon, formaður stjórnar
Efnahagsmál, ráðningar og samstarfsverkefni SSNV, samgöngu- og innviðamál og skert framlög til sóknaráætlana og farsældar barna.