33. ársþing SSNV

33. ársþing SSNV var haldið í Gránu á Sauðárkróki miðvikudaginn 9. apríl 2025. Þingforseti var Sigfús Ingi Sigfússon og 19 af 27 kjörnum fulltrúum sátu þingið.


Gögn þingsins

Þinggjörð 33. ársþings (PDF)

Ályktanir ársþings SSNV (PDF)

Ársreikningur SSNV 2024 (PDF)

Ársskýrsla SSNV 2024 (PDF)

Tillaga um laun og þóknun til stjórnar og nefnda (PDF)

Samþykktir SSNV – endurskoðuð útgáfa apríl 2025 (PDF)

9. kafli sveitarstjórnarlaga (PDF)

Vinnustofa um 9. kafla sveitarstjórnarlaga (PDF)


Helstu niðurstöður
  • Ársreikningur SSNV fyrir árið 2024 var samþykktur samhljóða. Tillaga um laun og þóknun til stjórnar og nefnda fyrir árið 2025 var samþykkt með 9 atkvæðum gegn 4.
  • Samþykktar voru samhljóða fjórar ályktanir: um áframhaldandi stuðning við Flugþróunarsjóð, uppbyggingu verknámshúss FNV á Sauðárkróki, vegasamgöngur á Norðurlandi vestra og framlög til almenningssamgangna (A-10).
  • Breytingar á samþykktum og þingsköpum SSNV voru samþykktar samhljóða.
  • Byggðagleraugu SSNV 2025 hlutu Lögreglan á Norðurlandi vestra og Sýslumannsembættið á Norðurlandi vestra.


Dagskrá – miðvikudagur 9. apríl 2025

9:30 – Þingsetning

Einar Eðvald Einarsson, formaður stjórnar SSNV

Kosning þingforseta, varaforseta, tveggja ritara og tveggja vararitara

Kynning á nefndum þingsins – formenn þingnefnda


9:40 – Kjörnefnd kannar lögmæti þingsins

Sveinbjörg Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV


9:50 – Skýrsla stjórnar SSNV fyrir árið 2024

Einar Eðvald Einarsson, formaður stjórnar SSNV


10:00 – Ávörp

Ólafur Adolfsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis

Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Norðvesturkjördæmis

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Norðvesturkjördæmis

Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga


11:00 – Ársreikningur SSNV 2024

Helgi Níelsson hjá KPMG kynnir ársreikning SSNV


11:10 – Markaðsstofa Norðurlands

Halldór Óli Kjartansson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands, fer yfir starfsemi og helstu verkefni í samstarfinu


11:20 – Störf nefnda

Fjárhagsnefnd fjallar um ársreikning og laun og þóknun til stjórnar og nefnda. Allsherjarnefnd fjallar um ályktanir. Stjórnskipulagsnefnd fjallar um samþykktir.


12:00 – Hádegisverður


12:30 – Endurskoðun 9. kafla sveitarstjórnarlaga

Vinnustofa í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og innviðaráðuneytið um breytingar á 9. kafla sveitarstjórnarlaga. Freyja Sigurgeirsdóttir frá Sambandinu stýrði vinnustofunni.


14:00 – Afgreiðsla nefndarálita


14:30 – Afhending Byggðagleraugnanna 2025


15:00 – Þingslit


Ræður og skýrslur

Skýrsla stjórnar – Einar E. Einarsson, formaður stjórnar

Byggðaþróun, atvinnuuppbygging, samgöngur, raforka og menntun á Norðurlandi vestra.