34. ársþing SSNV
34. ársþing SSNV var haldið á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra miðvikudaginn 8. apríl 2026. Þingforseti var Unnur Valborg Hilmarsdóttir og 23 af 26 kjörnum fulltrúum sátu þingið.
Gögn þingsins
Ályktun ársþings – Staða landshlutans (PDF)
Tillaga um laun og þóknun til stjórnar og nefnda (PDF)
Helstu niðurstöður
- Ársreikningur SSNV fyrir árið 2025 var samþykktur samhljóða, ásamt tillögu um laun og þóknun til stjórnar og nefnda fyrir árið 2026.
- Þingið samþykkti ályktun um brothætta stöðu Norðurlands vestra og beindi henni til ríkisstjórnar Íslands. Þar er meðal annars kallað eftir aukinni fjárfestingu í samgöngum og orkuinnviðum, jafnari dreifingu ríkisstarfa og stuðningi við húsnæðisuppbyggingu.
- Tveimur ályktunartillögum Húnabyggðar, um Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og sameiginlega innviðastefnu sveitarfélaganna, var vísað til stjórnar SSNV.
- Byggðagleraugu SSNV 2026 hlutu Borealis Data Center í Húnabyggð og FISK Seafood í Skagafirði.
Dagskrá – miðvikudagur 8. apríl 2026
14:00 – Þingsetning
Einar Eðvald Einarsson, formaður stjórnar SSNV
Kosning þingforseta, varaforseta, tveggja ritara og tveggja vararitara
Kynning á nefndum þingsins – formenn þingnefnda
14:10 – Kjörnefnd kannar lögmæti þingsins
Þorleifur Karl Eggertsson, formaður kjörnefndar
14:20 – Skýrsla stjórnar
Einar Eðvald Einarsson, formaður stjórnar SSNV
14:30 – Skýrsla framkvæmdastjóra fyrir árið 2025
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
14:40 – Ávörp
Ólafur Adolfsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis
15:10 – Ársreikningur SSNV 2025
Helgi Níelsson hjá KPMG kynnir ársreikning SSNV
15:25 – Störf nefnda
Fjárhagsnefnd fjallar um ársreikning og laun og þóknun til stjórnar og nefnda. Allsherjarnefnd fjallar um ályktanir.
16:00 – Kaffi
16:20 – Afgreiðsla nefndarálita
17:00 – Erindi
Mælaborð Byggðastofnunar – Þorkell Stefánsson, Byggðastofnun
Nýting gervigreindar í stjórnsýslunni – Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi
17:45 – Afhending Byggðagleraugnanna 2026
18:00 – Þingslit og kvöldverður
Ræður og skýrslur
Skýrsla stjórnar – Einar E. Einarsson, formaður stjórnar
Staða landshlutans, íbúaþróun, húsnæðismál, samgöngur og aðrir innviðir.
Skýrsla framkvæmdastjóra – Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
Starfsemi SSNV á árinu 2025: ráðgjöf, nýsköpun, Sóknaráætlun og hagsmunagæsla.