3. september 2026

Fundargerð 143. fundar stjórnar SSNV, 31. ágúst 2026

Hér má nálgast fundargerð á pdf.

Mánudaginn 31. ágúst 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9:00. 

Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. 

 

Dagskrá: 

 

  1. Farsæld barna 
  2. Eimur 
  3. Forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 
  4. Úthlutunar- og starfsreglur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra   
  5. Haustþing SSNV 
  6. Framlögð mál til kynningar 
  7. Fundargerðir   
  8. Umsagnir 
  9. Skýrsla framkvæmdastjóra 

 

 

Afgreiðslur 

  1. Farsæld barna 

Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri Farsældar, kom til fundar og fór yfir verkefni farsældar barna.   

 

Stjórn þakkar Söru fyrir greinargóða yfirferð. Stjórn SSNV telur brýnt að ríkið tryggi áframhaldandi fjármuni til rekstrar verkefnis um farsæld barna. 

 

 

2. Eimur 

Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, og Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærrar viðskiptaþróunar hjá Eimi, komu til fundar og kynntu evrópuverkefnið DEPLOY-PED og tillögu um ákveðna aðkomu SSNV. 

 

Stjórn þakkar Ottó og Sigurði fyrir greinargóða kynningu og felur framkvæmdastjóra SSNV að skoða málið nánar, þar á meðal samantekt á umfangi og eðli mögulegrar aðkomu samtakanna í minnisblaði, og leggja fyrir stjórn. 

 

 

3. Forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 

Matthías Rúnarsson, bókari samtakanna, kom til fundar og fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027. 

 

Stjórn þakkar Matthíasi fyrir góða yfirferð og felur framkvæmdastjóra að stilla fjárhagsáætlun upp í samræmi við umræður á fundinum. 

 

4. Úthlutunar- og starfsreglur Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra 

Berglind Björnsdóttir og Guðlaugur Skúlason komu til fundar og fóru yfir tillögur að breytingum á úthlutunarreglum Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. 

 

Stjórn þakkar Berglindi og Guðlaugi fyrir góða yfirferð og samþykkir framlagðar tillögur að breytingum á úthlutunarreglum. 

 

5. Haustþing SSNV 

Framkvæmdastjóri fór yfir undirbúning og skipulag haustþings SSNV sem halda á 1. október í Húnaþingi vestra. 

 

Stjórn samþykkir drög að dagskrá og felur framkvæmdastjóra að senda út fundarboð. Jafnframt óskar stjórn sérstaklega eftir viðveru þingmanna kjördæmisins og Innviðaráðherra á haustþinginu. 

 

6. Framlögð mál til kynningar   

a) Fundargerðir    

Stjórn SSNE, 11. ágúst 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SSA, 11. ágúst 2026. Fundargerðin. 

Stjórn Vestfjarðarstofu, 26. júní 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SSV, 10. júní 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SSH, 17. ágúst 2026. Fundargerðin. 

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 20. maí 2026. Fundargerðin. 

Um­hverf­is- og inn­viðanefnd Sam­bands­ins, 2. júní 2026. Fundargerðin

 

b) Umsagnir 

Drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003. Mál nr. S-122/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. september 2026. 

 

 

 

 

7. Skýrsla framkvæmdastjóra 

Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11.53. 

 

Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.