5. nóvember 2026
Fundargerð 146. fundar stjórnar SSNV, 3. nóvember 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Þriðjudaginn 3. nóvember 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Blönduósi. Hófst fundurinn kl. 9:00.
Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Magnús Magnússon, formaður, setti fundinn og stjórnaði honum.
Dagskrá:
- Heilbrigðisþjónusta á Norðurlandi vestra – fundur með forstjóra HSN
- Fjármagn til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra 2027
- Skipan í Samgöngu- og innviðanefnd SSNV
- Farsæld barna
- Drög að EKKO-stefnu SSNV
- Drög að gervigreindarstefnu SSNV
- Drög að starfsmannahandbók SSNV
- Förgun yfirgefinna skipa og báta í höfnum
- Framlögð mál til kynningar: a) Fundargerðir, b) Umsagnir, c) Umsagnir samþykktar á milli funda
- Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
1. Heilbrigðisþjónusta á Norðurlandi vestra – fundur með forstjóra HSN
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN), kom á fund stjórnar SSNV að ósk stjórnar og fór yfir stöðu þjónustu á starfsstöðvum HSN í landshlutanum, helstu áskoranir og áherslur stofnunarinnar til næstu ára. Rætt var meðal annars um aðgengi að heilsugæslu og læknisþjónustu, mönnun og sérfræðiþjónustu, og hjúkrunarrými og öldrunarþjónustu.
Stjórn þakkar Jóni Helga Björnssyni, forstjóra HSN, fyrir gott og upplýsandi samtal.
Stjórn leggur ríka áherslu á að ríkið tryggi heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni fullnægjandi fjármagn svo halda megi uppi öruggri og aðgengilegri heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Í dreifbýlum landshluta með miklum vegalengdum gegna starfsstöðvar HSN lykilhlutverki í þjónustu við íbúa, meðal annars í heilsugæslu, læknisþjónustu, hjúkrunarrýmum og öldrunarþjónustu. Stjórn lýsir yfir áhyggjum af því að haldi niðurskurður af hálfu ríkisins áfram sé ljóst að ráðast þurfi í frekari niðurskurð innan HSN, sem kemur beint niður á þjónustu við íbúa Norðurlands vestra.
Þá bendir stjórn á að fjármögnun endurbóta á húsnæði heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni er ekki síður mikilvæg en fjármögnun nýbygginga. Viðunandi húsnæði er forsenda þess að veita megi góða þjónustu og laða að starfsfólk.
2. Fjármagn til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra 2027
Mál nr. Mal-00009
Berglind Björnsdóttir og Guðlaugur Skúlason, starfsmenn SSNV, komu til fundar og fóru yfir umsóknarferli Uppbyggingarsjóðs fyrir árið 2027. Lagðar voru fram upplýsingar um það fjármagn sem er til ráðstöfunar til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra fyrir árið 2027. Samkvæmt fjárhagsáætlun eru 60.419.000 kr. til úthlutunar, auk endurúthlutaðra styrkja að fjárhæð 3.686.194 kr. 104 umsóknir bárust sjóðnum í haust.
Stjórn þakkar Berglindi og Guðlaugi fyrir góða yfirferð. Stjórn samþykkir að 64.105.194 kr. verði til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra árið 2027, til menningar- og samfélagsverkefna alls 32.052.597 kr. og til atvinnu- og nýsköpunarverkefna 32.052.597 kr.
3. Skipan í Samgöngu- og innviðanefnd SSNV
Mál nr. Mal-00008
Lögð var fram tillaga að skipan fulltrúa í Samgöngu- og innviðanefnd SSNV til umfjöllunar og afgreiðslu í stjórn.
Eftirfarandi voru tilnefnd af sveitarfélögunum:
- Skagafjörður: Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Guðný Axelsdóttir
- Sveitarfélagið Skagaströnd: Ragnar Rögnvaldsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir
- Húnabyggð: Guðmundur Haukur Jakobsson og Ragnhildur Haraldsdóttir
- Húnaþing vestra: Sigurður Líndal Þórisson og Eygló Hrund Guðmundsdóttir
Stjórn SSNV samþykkir að eftirtaldir skipi Samgöngu- og innviðanefnd SSNV: Guðný Axelsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Guðmundur Haukur Jakobsson og Sigurður Líndal Þórisson. Stjórn samþykkir jafnframt að skipa Guðmund Hauk sem formann nefndarinnar.
4. Farsæld barna
Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri farsældar barna, kom til fundar og fór yfir þau verkefni sem framkvæmdahópur farsældarráðs Norðurlands vestra hefur sótt um fjármögnun fyrir til ráðuneytisins.
Stjórn þakkar Söru Björk Þorsteinsdóttur fyrir góða yfirferð.
Stjórn SSNV leggur áherslu á mikilvægi málaflokksins og þess starfs sem unnið hefur verið í þágu farsældar barna á Norðurlandi vestra. Samstarf þjónustuveitenda þvert á kerfi er forsenda þess að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nái markmiðum sínum, og verkefnastjóri farsældar gegnir þar lykilhlutverki.
Enn liggur ekki fyrir hvort verkefnið, hvað varðar starf verkefnastjóra farsældar, verði framlengt. Óvissan torveldar áætlanagerð og getur stefnt þeim árangri sem náðst hefur í hættu. Stjórn SSNV telur mikilvægt að ríkið veiti skýr svör sem fyrst, svo að sveitarfélögin og SSNV geti gert viðeigandi ráðstafanir.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með mennta- og barnamálaráðherra um framhald verkefnisins.
5. Drög að EKKO-stefnu SSNV
Mál nr. Mal-00005
Lögð voru fram drög að uppfærðri stefnu og viðbragðsáætlun SSNV gegn einelti, kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi (EKKO) til umfjöllunar og afgreiðslu í stjórn. Stefnan er hluti af starfsmannahandbók SSNV.
Stjórn SSNV samþykkir framlagða stefnu og viðbragðsáætlun SSNV gegn EKKO.
6. Drög að gervigreindarstefnu SSNV
Mál nr. Mal-00010
Lögð voru fram drög að stefnu SSNV um notkun gervigreindar í starfi samtakanna til umfjöllunar í stjórn.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að ljúka vinnu við gervigreindarstefnu SSNV í samræmi við umræður á fundinum og leggja hana fyrir stjórn að nýju.
7. Drög að starfsmannahandbók SSNV
Mál nr. Mal-00007
Lögð voru fram drög að starfsmannahandbók SSNV til umfjöllunar og afgreiðslu í stjórn.
Stjórn samþykkir framlagða starfsmannahandbók.
8. Förgun yfirgefinna skipa og báta í höfnum
Tekin var til umræðu sú staða sem skapast þegar bátar og skip daga uppi í höfnum, meðal annars í kjölfar gjaldþrota útgerða eða vegna sinnuleysis eigenda, og kostnaður sem af því hlýst fyrir hafnir og sveitarfélög.
Stjórn SSNV lýsir yfir áhyggjum af bátum og skipum sem daga uppi í höfnum, meðal annars í kjölfar gjaldþrota útgerða eða vegna sinnuleysis eigenda. Slík fleyti geta skapað öryggis- og umhverfisáhættu, hamlað starfsemi hafna og valdið sveitarfélögum verulegum kostnaði við eftirlit, m.a. til að koma í veg fyrir að þau sökkvi innan hafnar, auk kostnaðar við olíuhreinsun og förgun skipsflaks.
Það er að miklu leyti tilviljunum háð við hvaða höfn bátar og skip enda eftir sína síðustu ferð, og því lendir kostnaðurinn af förgun þeirra með handahófskenndum hætti á því sveitarfélagi sem svo háttar til að hýsir höfnina hverju sinni, óháð því hvort tengsl skipsins við viðkomandi byggðarlag séu nokkur. Fámenn sveitarfélög með litla hafnarsjóði standa sérstaklega illa að vígi þegar kemur að því að bera slíkan kostnað ein og óstudd.
Stjórn SSNV krefst þess að komið verði á sérstöku úrræði, t.d. í formi sjóðs, trygginga eða styrkjakerfis á vegum ríkisins, sem geri sveitarfélögum kleift að sækja um fjárstuðning vegna förgunar eigendalausra eða yfirgefinna skipa og báta í höfnum sínum, þannig að ábyrgðin og kostnaðurinn af þessu vandamáli lendi ekki með ósanngjörnum hætti á einstökum sveitarfélögum af tilviljun einni saman.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að eiga fund með framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga til að ræða aðkomu sambandsins fyrir hönd allra sveitarfélaga með hafnir varðandi sameiginleg úrræði.
9. Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
- Stjórn SSNE, 13. október 2026. Fundargerðin.
- Stjórn SASS, 2. október 2026. Fundargerðin.
- Stjórn SSH, 5. október 2026. Fundargerðin.
- Stjórn SSH, 19. október 2026. Fundargerðin.
- Stjórn SSS, 9. september 2026. Fundargerðin.
- Stjórn SSS, 14. október 2026. Fundargerðin.
- Stjórn SSA, 27. október 2026. Fundargerðin.
- Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 23. september 2026. Fundargerðin.
- Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 8. október 2026. Fundargerðin.
- Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál, 5. október 2026. Fundargerðin.
b) Umsagnir
- Endurskoðuð drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003. Mál nr. S-208/2026. Umsagnarfrestur er til og með 2. nóvember 2026.
- Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit). Mál nr. S-214/2026. Umsagnarfrestur er til og með 3. nóvember 2026.
- Orkuöryggi almennings. Mál nr. 92/2026. Umsagnarfrestur er til og með 9. nóvember 2026.
- Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013. Mál nr. S-213/2026. Umsagnarfrestur er til og með 10. nóvember 2026.
- Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Mál nr. S-191/2026. Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026.
- Ungmennahús í framhaldsskólum. Mál nr. 235/2026. Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026.
- Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga. Mál nr. S-212/2026. Umsagnarfrestur er til og með 17. nóvember 2026.
- Tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði. Mál nr. S-162/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. desember 2026.
- Grænbók um landgræðslu og skógrækt. Mál nr. S-218/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. desember 2026.
- Tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefna: Skýrsla verkefnisstjórnar. Mál nr. S-202/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. janúar 2027.
Stjórn samþykkir bókun um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit) og felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögn um Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.
c) Umsagnir samþykktar á milli funda
- Frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Mál nr. 5/2026. Umsögn send umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis 30. september 2026.
- Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu). Mál nr. S-198/2026. Umsögn send í samráðsgátt 23. október 2026.
- Drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Mál nr. S-210/2026. Umsögn send í samráðsgátt 23. október 2026.
- Tillaga til þingsályktunar um skattfrádrátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu. Mál nr. 186/2026. Umsögn send efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 23. október 2026.
- Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó. Mál nr. S-209/2026. Umsögn send í samráðsgátt 27. október 2026.
Stjórn SSNV hefur þegar samþykkt framangreindar umsagnir og falið framkvæmdastjóra að senda þær inn. Afgreiðsla málanna er færð til bókar.
10. Skýrsla framkvæmdastjóra
Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:50.
Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.