13. október 2026

Fundargerð 145. fundar stjórnar SSNV, 6. október 2026

Hér má nálgast fundargerð á pdf.


Þriðjudaginn 6. október 2026 kom stjórn SSNV saman til fundar á Faxatorgi í Skagafirði. Hófst fundurinn kl. 9:00.


Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.

Magnús Magnússon, formaður, setti fundinn og stjórnaði honum. Davíð Birkir Tryggvason boðaði forföll og ekki náðist að boða varamann í hans stað.


Dagskrá:

  1. Sameiginleg ferð sveitarstjórnarfulltrúa Norðurlands vestra, sveitarstjóra og SSNV
  2. Vinnudagur með stjórn og starfsfólki SSNV
  3. Áhersluverkefni Sóknaráætlunar – staða og framhald
  4. Framlögð mál til kynningar: a) Fundargerðir, b) Umsagnir
  5. Skýrsla framkvæmdastjóra


Afgreiðslur


1. Sameiginleg ferð sveitarstjórnarfulltrúa Norðurlands vestra, sveitarstjóra og SSNV

Undanfarin tvö kjörtímabil hafa samtökin skipulagt sameiginlega fræðsluferð fyrir sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarstjóra á Norðurlandi vestra. Stjórn SSNV ræddi um hvort halda eigi því áfram á yfirstandandi kjörtímabili.

Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að vinna minnisblað um fræðsluferð til Noregs með tilliti til orku-, úrgangs-, samgöngu- og byggðamála.


2. Vinnudagur með stjórn og starfsfólki SSNV

Framkvæmdastjóri fór yfir hugmyndir að vinnudegi stjórnar og starfsfólks SSNV. Tilgangur vinnudagsins er að móta áherslur í starfi SSNV á kjörtímabilinu.

Stjórn samþykkir að halda vinnudag með starfsfólki 3. nóvember á Blönduósi og felur framkvæmdastjóra nánari undirbúning.


3. Áhersluverkefni Sóknaráætlunar – staða og framhald

Guðlaugur Skúlason, starfsmaður SSNV, kom til fundar. Farið var yfir stöðu og framhald áhersluverkefna Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu.

Stjórn þakkar Guðlaugi fyrir greinargóða yfirferð.


4. Framlögð mál til kynningar

a) Fundargerðir

  • Stjórn SSA, 15. september 2026.
  • Stjórn SSNE, 15. september 2026.
  • Stjórn SSH, 21. september 2026.
  • Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 11. september 2026.

b) Umsagnir

  • Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026–2029. Mál nr. 102/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. október 2026.
  • Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald. Mál nr. S-180/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. október 2026.
  • Búvörulög og búnaðarlög. Mál nr. 76/2026. Umsagnarfrestur er til og með 9. október 2026.

Framkvæmdastjóra falið að senda umsögn um Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026–2029.


5. Skýrsla framkvæmdastjóra

Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.


Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:25.


Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.