2. október 2026
Fundargerð 144. fundar stjórnar SSNV, 22. september
Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Þriðjudaginn 22. september 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9:00.
Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Magnús Magnússon, formaður, setti fundinn og stjórnaði honum.
Dagskrá:
- Rarik kemur til fundar
- Tillögur að breytingum á samþykktum SSNV
- Samstarfssamningur um Eim
- Fjárhags- og starfsáætlun ársins 2027
- Samstarfsverkefni við Orkufélag Steingerðar
- Haustþing SSNV
- Drög að ályktunum
- Skýrsla um menningarhús á landsbyggðinni
- Framlögð mál til kynningar
- Fundargerðir
- Umsagnir
- Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
- Rarik kemur til fundar
Fulltrúar Rarik koma á fund stjórnar SSNV. Tilgangur samtalsins er að ræða þau tækifæri sem felast í uppbyggingu innviða á Norðurlandi vestra.
Stjórn þakkar fulltrúum Rarik fyrir upplýsandi og gott samtal.
2. Tillögur að breytingum á samþykktum SSNV
Lagðar voru fram tillögur að breytingum á samþykktum SSNV til umfjöllunar í stjórn. Breytingarnar snúa að skipun formanns úthlutunarnefndar.
Stjórn samþykkir að leggja framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum SSNV til umræðu og afgreiðslu á haustþingi samtakanna.
3. Samstarfssamningur um Eim
Lagður var fram samstarfssamningur um verkefnið Eim til umfjöllunar og afgreiðslu í stjórn SSNV.
Stjórn samþykkir að framlag SSNV inn í samstarfsverkefnið Eim verði 10 milljónir á ári út samningstímann, 2027-2029. Samstarfsverkefnið verður skilgreint sem áhersluverkefni sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Stjórn felur framkvæmdastjóra að undirrita samninginn fyrir hönd samtakanna.
4. Fjárhags- og starfsáætlun ársins 2027
Fjárhags- og starfsáætlun SSNV fyrir árið 2027 lagðar fyrir stjórn til kynningar og umræðu. Matthías Rúnarsson, bókari SSNV, kom til fundar og fór yfir fjárhagsáætlun.
Stjórn þakkar fyrir góða yfirferð og felur framkvæmdastjóra að gera breytingar á fjárhagsáætlun í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir haustþing til umræðu og afgreiðslu.
5. Samstarfsverkefni við Orkufélag Steingerðar
Stjórn SSNV ræddi um möguleika á sameiginlegum starfsmanni með Orkusamfélagi Steingerðar, þar sem starfshlutfallið skiptist milli DEPLOY-PED Evrópuverkefnisins og atvinnuráðgjafar fyrir SSNV. Málið var framhald af kynningu Eims á Deploy-PED verkefninu á síðasta fundi.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Orkusamfélag Steingerðar á grundvelli þess sem rætt var á fundinum og bera samninginn undir stjórn.
6. Haustþing SSNV
Farið var yfir lokaatriði er varða undirbúning og framkvæmd haustþings SSNV.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda út gögn til þingfulltrúa.
7. Drög að ályktunum
Drög að ályktunum sem lagðar verða fyrir haustþing SSNV voru lögð fram til yfirferðar og umræðu í stjórn.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda ályktanir til þingfulltrúa með áorðnum breytingum.
8. Skýrsla um menningarhús á landsbyggðinni
Berglind Björnsdóttir, starfsmaður SSNV, kom til fundar og fór yfir skýrslu um menningarhús á landsbyggðinni (B9).
Stjórn þakkar Berglindi fyrir góða yfirferð og fagnar útkomu skýrslunnar. Stjórn skorar jafnframt á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að gaumgæfa næstu skref hvað varðar aðgerð B9 á Byggðaáætlun.
9. Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
Stjórn Vestfjarðarstofu, 27. ágúst 2026. Fundargerðin.
Stjórn SSV, 26. ágúst 2026. Fundargerðin.
Stjórn SSH, 7. september 2026. Fundargerðin.
Stjórn SSS, 12. ágúst 2026. Fundargerðin.
Stjórn SASS, 4. september 2026. Fundargerðin.
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 28. ágúst 2026. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. ágúst 2026. Fundargerðin.
Umhverfis- og innviðanefnd Sambandsins, 1. september 2026. Fundargerðin.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál, 7. september 2026. Fundargerðin.
Framkvæmdahópur farsældarráðs, 31. ágúst 2026. Fundargerðin.
b) Umsagnir
Frumvarp til fjárlaga 2027. Mál nr. 1/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. október 2026.
Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027. Mál nr. 2/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026.
Frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Mál nr. 5/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026.
Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. Mál nr. 4/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026.
Stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030. Mál nr. 75/2026. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026.
Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó – Áform. Mál nr. S-172/2026. Umsagnarfrestur er til og með 25. september 2026.
Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna. Mál nr. S-178/2026. Umsagnarfrestur er til og með 2. október 2026.
Framkvæmdastjóra falið að gera drög að umsögnum um Frumvarp til fjárlaga 2027, Breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027, Stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030, og Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó – Áform.
10. Skýrsla framkvæmdastjóra
Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.04.
Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.