Hlaðvarpið Fólkið á Norðurlandi vestra - Guðbjörg Halldórsdóttir

Nýr þáttur af hlaðvarpinu Fólkið á Norðurlandi vestra er kominn út. Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Guðbjörg Halldórsdóttir, leikskólastjóri. Guðbjörg  flutti nýlega með manninum sínum og þremur börnum á Sauðárkrók. Hún hefur nú tekið til starfa sem leikskólastjóri á leikskólanum Ársölum. Hún segir okkur frá búferlaflutningunum, tækifærunum á Norðurlandi vestra og nýja starfinu. 

Árið 2019 var farið af stað með hlaðvarpsþættina Fólkið á Norðurlandi vestra. Framleiddir voru um 30 þættir sem vöktu mikla athygli og fengu góða hlustun. Við endurvekjum nú hlaðvarpið og stefnum á að birta þætti reglulega með viðtölum við áhugaverða einstaklinga á Norðurlandi vestra sem eru að sýsla við áhugaverða hluti. 

Þættirnir eru aðgengilegir á podbean, inn á helstu hlaðvarpsveitum og á heimasíðu SSNV.