Framúrskarandi verkefni 2023

SSNV kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2023. 

Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent í mars 2024.

Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:

  1. Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
  2. Verkefni á sviði menningar.

Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum.

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2019 fengu: Sýndarveruleiki ehf. og Kakalaskáli.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2020 fengu: Vörusmiðja Biopol og Handbendi brúðuleikhús.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2021 fengu: Brúnastaðir í Fljótum, Maður og kona ehf. og Sögufélag Skagafjarðar.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2022 fengu: Austan Vatna og Ós Textíllistamiðstöð.
 
Tekið er við tilnefningum til miðnættis 24. janúar 2024 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti. Reglur um viðurkenningarnar er að finna hér. Hér má finna upplýsingar um verkefni sem hlutu brautargengi úr Uppbyggingarsjóði fyrir árið 2023.