2. október 2026

Haustþing SSNV mótmælir fækkun þingmanna og hækkun kílómetragjalds

10. haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á Hótel Laugarbakka 1. október.

Haustþing SSNV samþykkti sjö ályktanir um hagsmunamál landshlutans


10. haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) var haldið á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra fimmtudaginn 1. október. Á þinginu voru samþykktar sjö ályktanir um málefni landshlutans, fjárhags- og starfsáætlun samtakanna fyrir árið 2027 og breytingar á samþykktum SSNV. Mæting þingfulltrúa var 88%.


Sjö ályktanir

Ályktanirnar snerta samgöngur, skattlagningu, fjármögnun lögbundinnar þjónustu og stöðu landsbyggðarinnar:

  • Kílómetragjald og eldsneytisskattar. Þingið mótmælir hækkun kílómetragjalds og eldsneytisskatta, sem leggjast þyngra á íbúa landsbyggðarinnar en þéttbýlis. Þingið krefst þess að tekjur af gjaldtöku á umferð skili sér í viðhald vega, vetrarþjónustu og umferðaröryggi.
  • Samgöngu- og innviðamál. Þingið fagnar samþykkt samgönguáætlunar 2026–2040. Það krefst þó aukins fjármagns til viðhalds vega, vetrarþjónustu, farsímasambands í dreifbýli og hafnarframkvæmda, og að Norðurland vestra verði forgangssvæði við uppbyggingu flutningskerfis raforku.
  • Breytingar á kosningalögum. Þingið lýsir eindreginni andstöðu við tillögur um að fækka þingmönnum Norðvesturkjördæmis úr sjö í sex.
  • Framlög til landshlutasamtaka. Þingið mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á framlögum ríkisins til sóknaráætlana og atvinnuþróunar á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga.
  • Farsæld barna og málefni fatlaðs fólks. Þingið krefst þess að ríkið tryggi fullnægjandi fjármagn til farsældarþjónustu í þágu barna og til málaflokks fatlaðs fólks, svo sveitarfélögum sé ekki gert að veita lögbundna þjónustu án þess að kostnaði sé mætt.
  • Ferðaþjónusta. Þingið lýsir áhyggjum af auknum álögum á ferðaþjónustu, meðal annars hækkun virðisaukaskatts á baðlón og innviðagjaldi á skemmtiferðaskip. Þá mótmælir þingið áformum um að fella niður framlag til Flugþróunarsjóðs, sem styður millilandaflug um Akureyrarflugvöll.
  • Endurgreiðsla virðisaukaskatts. Þingið skorar á ríkisstjórn og Alþingi að lögfesta fulla og varanlega endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna húsnæðis sem hýsir lögbundna þjónustu sveitarfélaga, svo sem leik- og grunnskóla.


Ályktununum er beint til viðkomandi ráðuneyta og nefnda Alþingis. Þær má lesa í heild sinni hér.

Þingið samþykkti einnig að endurskipa samgöngu- og innviðanefnd SSNV, með einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi. Nefndin á að yfirfara samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra og leggja uppfærða áætlun fyrir ársþing SSNV 2027.


Fjárhags- og starfsáætlun 2027

Þingið samþykkti fjárhags- og starfsáætlun SSNV fyrir árið 2027. Samkvæmt áætluninni lækka framlög ríkisins til samtakanna úr 219 m.kr. í 195 m.kr. milli ára og vegur skerðing framlaga til sóknaráætlunar þar þyngst.

Gert er ráð fyrir að úthlutað verði 60,4 m.kr. í styrki úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og að 40,7 m.kr. renni til áhersluverkefna sóknaráætlunar. Áætlað er að samtökin verði rekin með 26,1 m.kr. halla á árinu og að gengið verði á eigið fé þeirra.


Breytingar á samþykktum og kosningar

Breytingar á samþykktum SSNV snúa að skipunartíma í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. Formaður nefndarinnar verður framvegis skipaður til þriggja ára og varamenn til tveggja ára. Markmiðið er að tryggja að ekki verði skipt um alla nefndarmenn á sama tíma.

Helgi Níelsson hjá KPMG var kosinn endurskoðandi samtakanna.


Gestir og erindi

Magnús Magnússon, formaður stjórnar SSNV, setti þingið. Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Ólafur Adolfsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis, ávörpuðu þingið.

Þá kynnti Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, starfsemi samtakanna, Sigurður Líndal Þórisson fjallaði um starf Eims og Halldór Óli Kjartansson um Áfangastaðastofu Norðurlands.


SSNV þakkar þingfulltrúum og gestum fyrir komuna.