23. september 2026
Glæsilegt listaverk vígt á golfvellinum í Vatnahverfi
Veggjalist í Vatnahverfi er eitt fjölmargra verkefna sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.

Golfklúbburinn Ós í Húnabyggð vígði um helgina nýtt og glæsilegt listaverk á velli félagsins. Um er að ræða veggjalistaverk sem prýðir einn vegg vélageymslu klúbbsins og gefur öllu svæðinu nýjan og áhugaverðan blæ. Listakonan Inese Elferte málaði verkið í sumar og börn í Sumarfjöri Húnabyggðar skreyttu hurðirnar á gömlu fjárhúsunum, alls níu talsins.
Við sama tækifæri fór fram lokamót sumarsins, árlegt, sameiginlegt mót klúbbanna á Blönduósi og Skagaströnd þar sem spilað er á völlum beggja klúbbanna.
Nokkur fjöldi gesta sótti vígsluna auk golfspilaranna. Flutt voru ávörp og að þeim loknum bauð Golfklúbburinn Ós upp á veitingar.
Verkefnið Veggjalist í Vatnahverfi er eitt fjölmargra verkefna sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Búið er að opna fyrir umsóknir í sjóðinn og viljum við hvetja öll sem luma á hugmyndum að verkefnum eða viðburðum til að kynna sér sjóðinn og sækja um.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 21. október kl. 14:00. Nánari upplýsingar má finna á vef SSNV, ssnv.is.