8. september 2026
Kynningarfundir um lánamöguleika Svanna
Fram undan eru tveir kynningarfundir um lánamöguleika Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna, og eru konur með viðskiptahugmyndir eða fyrirtæki hvattar til að kynna sér þau tækifæri sem sjóðurinn býður upp á.
Fimmtudaginn 10. september verður kynningarfundur hjá Landsbankanum við Reykjastræti í Reykjavík. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á Facebook-viðburðinum.
Mánudaginn 14. september verður síðan kynningarfundur um sjóðinn hjá Drift á Akureyri. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburðinum.
SSNV hvetur konur á Norðurlandi vestra sem eru að þróa viðskiptahugmyndir, stofna fyrirtæki eða vinna að vexti fyrirtækja sinna til að kynna sér möguleika Svanna og nýta tækifærið til að fræðast um þá fjármögnun sem sjóðurinn býður upp á.