14. september 2026

Ungmennaþing Norðurlands vestra 2026

Ungmennaþing um ofbeldi í nánum samböndum ungs fólks

Samstarf Barnaheilla, SSNV og Öruggara Norðurlands vestra

Ungmennaþing verður haldið fimmtudaginn 17. september kl. 09:30-13:00 í Fjölbrautaskólanum á Norðurlandi vestra. Öllum nemendum í 10. bekk er boðið að taka þátt í þinginu, frá öllum sex grunnskólum á Norðurlandi vestra.
 
Um er að ræða samstarfsverkefni Barnaheilla, SSNV, Farsældarráðs Norðurlands vestra, Öruggara Norðurland vestra og Forvarnaráætlunar Norðurlands vestra. Ungmennaþingið er byggt á samskonar vinnustofum og Barnaheill hélt víða um land á vormánuðum, en þó sérsniðið að aðstæðum á svæðinu. Þingið er haldið að frumkvæði SSNV og Öruggara NV, í samvinnu við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og með styrk frá Kaupfélagi Skagfirðinga, FISK seafood, Steinull, Borealis datacenter, Byggðarstofnunar, N1 á Sauðárkróki og Kjörbúðarinnar á Blönduósi.
 
Þema þingsins tekur mið af ungmennaþingum Barnaheilla frá í vor, þar sem ofbeldi í nánum samböndum unglinga var í forgrunni. Með beinni þátttöku unga fólksins á svæðinu er hægt að fá innsýn í upplifun og viðhorf þeirra, og hverju þau vilja koma á framfæri við samfélagið sitt varðandi ofbeldi í nánum samböndum.
 
Markmiðið er meðal annars að kanna hvort ungmennin þekki einkenni óheilbrigðra sambanda og ofbeldis, og viti hvert þau geta leitað eftir aðstoð. Einnig verður leitast við að heyra hvaða mögulegar lausnir þau sjái sjálf til að minnka slíkt ofbeldi. 
Það er mikill lærdómur falinn í þátttöku í ungmennaþingi og dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar. Barnaheill munu taka saman upplýsingar og niðurstöður að ungmennaþinginu loknu, og munu Farsældarráðið, Öruggara Norðurland vestra og ForNor nýta þá vinnu til að byggja upp betra forvarnarstarf og móta viðbrögð við ofbeldi í lífi ungmenna á Norðurlandi vestra.

Málefnið er afar mikilvægt, enda sýna fyrirliggjandi gögn að kynferðisofbeldi gegn ungu fólki og meðal ungmenna er alvarlegt samfélagslegt vandamál. Ljóst er að þörf er á aukinni umræðu og markvissri fræðslu, meðal annars um mörk, samþykki, virðingu og heilbrigð samskipti. Í þeirri vinnu sem fram undan er skiptir miklu máli að sjónarmið og reynsla ungmenna fái að heyrast. Rödd þeirra er því lykilþáttur í því að móta fræðslu og forvarnir sem raunverulega ná til ungs fólks og mæta þörfum þess.
Ofbeldi þrífst í þögninni.

Til upplýsingar er hér skýrsla með niðurstöðum frá sambærilegum ungmennaþingum sem haldin voru í öðrum landshlutum fyrri hluta árs: https://barnaheill.is/wp-content/uploads/2026/04/Nidurstodur-ungmennathinga-2026.pdf


Youth Forum on Violence in Close Relationships Among Young People

In cooperation of Save the Children, SSNV and Öruggara Norðurland vestra.

 

A Youth Forum will be held on Thursday, 17 September from 09:30-13:00 at FNV, the Comprehensive College of Northwest Iceland. All 10th-grade students from six junior high schools in the northwestern region are invited to participate in the workshop.
The forum is organized by Save the Children Iceland, SSNV, the Welfare Council of Northwest Iceland, Safer Northwest Iceland, and the Prevention Program of Northwest Iceland. The Youth Forum is based on similar workshops that Save the Children have run previously in other parts of the country but tailored to the needs of young people in the area.
 
This is done at the initiative of the municipalities and Safer North West Iceland, in close cooperation with FNV, and with funding from Kaupfélag Skagfirðinga, FISK seafood, Steinull, Borealis datacenter, the Regional Development Institute, N1 in Sauðárkrókur, and Kjörbúðin in Blönduós.
The focus will be on violence in teenage relationships. By consulting directly with the young people in the region, they will be able to share their own experiences, thoughts and feelings, and what support they feel should be available within their local communities.
The goal of the forum is to help young people to recognize the signs of unhealthy relationships and violence, and where they can seek available help. They will also be asked to look for ways to reduce violence within their own environment.

Participating in a workshop like this will be a valuable opportunity for the youth in northwestern Iceland to express their own opinions and expectations. Afterwards, Save the Children will produce a report based on the findings of the forum, which the Welfare Council, Safer Northwest Iceland, and ForNor will then use to improve their prevention program and to further develop a response plan for the region.
This is an important issue to tackle, as recent data indicates that sexual violence amongst young people has turned into a serious societal problem. There is an obvious need for open discussion and targeted education on boundaries, consent, respect, and healthy relationships. It is also crucial that the perspectives and experiences of the young people in the region will be reflected in that process. Their voices will be the key element in shaping education and prevention that truly reaches young people and meets their needs.
 
For further information, here is a report by Save the Children, in Icelandic, based on the result of previous youth forums: https://barnaheill.is/wp-content/uploads/2026/04/Nidurstodur-ungmennathinga-2026.pdf