Á Norðurlandi vestra er öflugt mannlíf og fjöldinn allur af viðburðum, uppákomum og fjölbreyttar hátíðir sem eru haldnar á hverju ári og má þar m.a. nefna Eld í Húnaþingi, Húnavöku, Réttir Food Festival, Hofsós heim, Sæluviku Skagfirðinga o.fl.
Fjölbreytt menningarstarfsemi er mikilvægur hluti af öllum samfélögum og hefur margvísleg áhrif á atvinnulíf á svæðinu, m.a. í ferðaþjónustu, menntun, verslun og þjónustu. Því er afar mikilvægt að styðja við öflugt og framsækið menningarstarf og þróa áfram þá lykilþætti sem til staðar eru. Í þessu samhengi má nefna að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa sett sér metnaðarfulla menningarstefnu í sameiningu sem tekur á fjölmörgum þáttum lista, menningar og skapandi greina.
Við höfum uppfært viðburðadagatal samtakanna með komandi menningarviðburðum og hvetjum íbúa til að senda inn ábendingar um viðburði á kolfinna@ssnv.is
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550