Kaffibrennslan Korg í Skagafirði er framúrskarandi verkefni á sviði atvinnu og nýsköpunar 2023

Guðlaugur Skúlason og Katrín M. Guðjónsdóttir ásamt eigendum kaffibrennslunnar Korg Völu Stefánsdótt…
Guðlaugur Skúlason og Katrín M. Guðjónsdóttir ásamt eigendum kaffibrennslunnar Korg Völu Stefánsdóttur og Rannveigu Einarsdóttur

Vala Stefánsdóttir og Rannveig Einarsdóttir hljóta viðurkenninguna fyrir kaffibrennsluna Korg fyrir framleiðslu á kaffi. Uppbygging er hafin á kaffibrennslu á Páfastöðum 2 í Skagafirði en kaffibrennslan Korg hefur það markmið að flytja inn ferskar kaffibaunir í háum gæðum og auka þannig úrval af gæða kaffi á Íslandi, sérstaklega á Norðurlandi vestra. Með því að rista kaffið vandlega og frekar ljóst eru dregnir fram náttúrulegir og fjölbreyttir bragðtónar í kaffið. Þannig feta þær í fótspor smábrugghúsa með uppbyggingu sem styður við kaffimenningu, nýjungar í framleiðslu, aukið framboð á gæðakaffi ásamt fræðslu og fjölbreyttum námskeiðum sem tengjast kaffi.  

Það er óhætt að fullyrða að vel var tekið á móti starfsfólki SSNV sem fór í heimsókn á Páfastaði 2. Vala bauð þar upp á nýmalað kaffi þar sem hún vígði aðstöðuna. Hellt var upp á tvær tegundir en kaffið var einstaklega bragðgott og rann bollinn ljúft niður í þessu notalega umhverfi.

Á myndinni má sjá Völu og Rannveigu eigendur kaffibrennslunnar Korg ásamt Katrínu M. Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra SSNV og Guðlaugi Skúlasyni, atvinnuráðgjafa hjá SSNV standa fyrir framan brennsluofninn þeirra. Við þökkum Völu og Rannveigu kærlega fyrir okkur. 

 

Við viljum benda á nýja samfélagsmiðla hjá kaffibrennslunni Korg þar sem hægt er að fylgjast með framhaldinu hjá þessu metnaðarfulla verkefni.

Facebook: https://www.facebook.com/profile.php?id=61556445369367

Instagram: @kaffikorg

 

Á næstu dögum munum við tilkynna hver mun hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi verkefni á sviði menningar, svo fylgist vel með! 

 

Kallað var eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á árinu 2023 á Norðurlandi vestra í tveimur flokkum. 

  1.  Verkefni á sviði atvinnu og nýsköpunar  

  2. Verkefni á sviði menningar 

Fjölda tilnefninga bárust frá íbúum á Norðurlandi vestra og þökkum við hér með góð viðbrögð. Á fundi stjórnar í febrúar var tekin ákvörðun um verkefnin byggða á tilnefningum íbúa um hvaða verkefni fengu viðurkenningu.