Grænar lausnir og sjálfbærni - Fjárfestingastefna MIPIM í Cannes

Það er mikið að gera hjá starfsfólki SSNV þessa daganna en Magnús Barðdal, verkefnastjóri fjárfestinga, er staddur á einni stærstu fjárfestingastefnu heims, MIPIM í Cannes í Frakklandi í hópi Íslandsstofu. Þar er áhersla lögð á grænar lausnir og sjálfbærni.

Þar er hann til þess að kynna tækifæri og þjónustu á Norðurlandi vestra fyrir fjárfestum, auka tengslamyndun og þekkingu sem mögulega mun nýtast til að auka fjárfestingar og fjölga atvinnuskapandi verkefnum í landshlutanum.

Hægt er að kynna sér fjárfestingastefnuna betur á síðu MIPIM: https://www.mipim.com/