Fundargerð úthlutunarnefndar 22. ágúst 2023

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.

 

 

33. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn þriðjudaginn 22. ágúst 2023, kl. 10:30. Fundurinn fór fram á Zoom. 

Mætt til fundar:  Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður, Hildur Þóra Magnúsdóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar og Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður fagráðs menningar. Einnig sat fundinn Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, starfsmaður SSNV. Formaður nefndarinnar stýrði fundi. 

 

Fyrir var tekið: 

 

  1. Drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2024.  

Fyrir fundinum lágu drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2024. 

Reglurnar þurfa staðfestingu stjórnar SSNV áður en þær taka gildi. 

 

  1. Drög að matsblaði umsókna fyrir árið 2024. 

Fyrir fundinum lágu drög að matsblaði vegna umsókna um styrk 2024. Drögin voru samþykkt óbreytt.  

Matsblaðið þarf samþykki stjórnar SSNV áður en það tekur gildi. 

 

  1. Tímasetningar umsóknar- og úthlutunarferils vegna styrkveitinga f. 2024. 

Samþykkt var að miða við eftirfarandi dagsetningar: 

  •   26. september 2023 - auglýst eftir umsóknum 

  •   1. nóvember 2023 - umsóknarfrestur rennur út 

 

  1. Önnur mál. 

Næsti fundur úthlutunarnefndar verður miðvikudaginn 8. nóvember kl. 11:00 á Skagaströnd. 

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 11:34. 

 

Sveinbjörg Pétursdóttir 

fundarritari