Vinnustofan Tunglskotin heim í hérað

Mynd/East of Moon
Mynd/East of Moon

Vinnustofan Tunglskotin heim í hérað fór fram á Snæfellsnesi dagna 20. - 21. ágúst í Frystikelfanum. Um er að ræða vinnustofu fyrir þátttakendur í nýsköpunarumhverfi landsbyggðana.

Vinnustofan var samtal milli þeirra aðila sem koma að nýsköpun í dreifðum byggðum, þ.e. frumkvöðla, stuðningsumhverfisins, opinberra og jafn sem einkaaðilar, rannsakenda og uppfræðara. Alls komu saman 26 einstaklingar með mikla þekkingu, reynslu og visku. Kolfinna Kristínardóttir, ráðgjafi á sviði nýsköpunar, fór á vinnustofuna fyrir hönd SSNV.

Markmið vinnustofunnar var að finna leiðir til að styðja við vistkerfi nýsköpunar um allt land. Öll erum við þátttakendur í að skapa þetta vistkerfi og við skoðum, skilgreinum og tölum saman um (ný)sköpun í vistkerfinu sjálfu.

  • Hvernig getur nýsköpun í dreifðum byggðum verið valkostur við borgir?
  • Hvernig mun nýsköpun breyta framtíð íslenskra landsbyggða?
  • Hvernig getur nýsköpun í dreifðum byggðum breytt framtíð heimsins?

Niðurstöður leiddu meðal annars í ljós þrjú þemu, að efla frumkvöðla frá unga aldri, styrkja ímynd samfélagsins inn á við og efling stoðkerfisins. Niðurstöðurnar voru teknar teknar upp í viðtalsformi sem verður birt á næstunni.

Arnar Sigurðsson hjá Austan mána, með fyrirlestur um vistkerfi nýsköpunar

Arnar Sigurðsson stofnandi East of Moon með fyrirlestur um vistkerfi  nýsköpunar í dreifðum byggðum. MYND/EAST OF MOON. 

Samræður um möguleika fyrir vistkerfi nýsköpunar í dreifðum byggðum. MYND/EAST OF MOON. 

Nánari upplýsingar um vinnustofuna.