Vinnustofa um sameignlega svæðisáætlun Norðurlands um meðhöndlun úrgangs

SSNV ásamt SSNE í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga boða til rafræns fundar og vinnustofu um framtíðarstefnu Norðurlands í sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Núverandi áætlun byggir á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Áætlunin, sem gerð er til 12 ára í senn, gildir til ársins 2026 og er þessi fundur nauðsynlegur hluti af endurskoðun þeirrar áætlunar.

 

Fundurinn er opinn öllum en sérstaklega er óskað er eftir þátttöku kjörinna fulltrúa og lykilstarfsmanna sveitarfélaga í úrgangsstjórnun.

 

Fundurinn sem er rafrænn verður haldinn 25. apríl kl. 14:00 – 17:00.

 

Skráningar á fundinn skal senda á ssne@ssne.is og verður skráðum þátttakendum sendur hlekkur.

 

Fundarstjóri verður Smári Jónas Lúðvíksson, verkefnastjóri umhverfismála hjá SSNE.

 

Dagskrá

 

Kynningar og stöðumat:

Samtaka um hringrásarhagkerfi og hlutverk sveitarfélaga Eygerður Margrétardóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Hvað breytist 1.jan 2023? Nýjar kröfur til svæðisáætlanagerðar sveitarfélaga Ísak Már Jóhannesson, Umhverfisstofnun

Kynning á stöðumati Stefán Gíslason, Environice

Stekkjarvík, kynning á starfsemi urðunarstaðar Magnús B. Jónsson, Formaður stjórnar Norðurá bs.

Hagkvæmnimat líforkuvers Guðmundur H. Sigurðarsson, Vistorku

Hvað gerist næst? Helstu áskoranir framundan Smári Jónas Lúðvíksson, SSNE

 

Stutt hlé

 

Umræður og samantekt:

Umræðuhópar um stöðu landshlutans, markmið og aðgerðir

Samantekt helstu niðurstaðna