ÚTIBÚIÐ

Á dögunum auglýstum við eftir tillögum að nafni á skrifstofusetur sem sett hefur verið upp í húsnæði Landsbankans, Höfðabraut 6, á Hvammstanga.

 

Okkur bárust fjölmargar tillögur og kunnum við öllum þeim sem sendu inn hugmynd bestu þakkir fyrir.

 

ÚTIBÚIÐ er nafnið sem varð ofan á - enda skemmtileg vísun, annars vegar í þá starfsemi sem verið hefur í húsnæðinu um árabil og verður áfram. Hins vegar vísar nafnið í að fyrirtæki og stofnanir geta sett upp sín útibú í aðstöðunni.

 

Sá sem kom með þessa tillögu hefur fengið afhent gjafabréf fyrir 2 á Sjávarborg en viðkomandi vill ekki láta nafns síns getið og virðum við það að sjálfsögðu :)

 

Skrifstofur SSNV hafa verið fluttar í Útibúið.