Styrkir til íslenskra sveitarfélaga til verkefna í þágu orkuskipta og aukinnar orkunýtingar

Íslenskum sveitarfélögum stendur nú til boða að sækja um styrk í svokallað European City Facility verkefni sem fjármagnað er af LIFE áætlun ESB. Styrkirnir eru veittir til  verkefna sem miða að því að þróa fjárfestingaáætlanir í þágu orkuskipta og aukinnar orkunýtingar. Upphæð styrkja er níu milljón krónur, auk þess sem styrkþegar fá sérhæfðan stuðning sérfræðinga við verkefnið. Opnað er fyrir umsóknir 15. janúar og skilafrestur umsókna er 15. mars og munu alls 75 verkefni í Evrópu hljóta styrk.

Styrknum er ætlað styðja við gerð fjárfestingaáætlunar á sviði orkuskipta, orkunýtni og loftslagsmála sem er sérsniðin eftir hverjum umsækjenda. Fyrri styrkþegar hafa nýtt fjármagnið til fjölbreyttra aðgerða, meðal annars við gerð hagkvæmniathugana, markaðsrannsókna, hagaðilagreiningar og mótun aðgerða til að auka samstarf við hagaðila, greiningar á lagaumhverfi, efnahagslegu umhverfi og fjármálum. Styrkþegar geta ráðist í  ýmsar aðgerðir en skilyrði er að þær þjóni því að miða að þróun fjárfestingaáætlunar á sviði orkuskipta og -nýtni.

 

Nánari upplýsingar um verkefnið og sjóðinn má finna á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Starfsfólk SSNV aðstoðar einnig við gerð umsókna.