Opið er fyrir umsóknir í Tónlistarsjóð

Nú fer senn að líða að umsóknarfresti í Tónlistarsjóð en hann rennur út kl. 16:00 mánudaginn 2. nóvember. Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess. Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til kynningar og markaðsetningar á tónlist og tónlistarfólki. Styrkir úr Tónlistarsjóði eru veittir til ákveðinna verkefna og yfirleitt ekki lengur en til eins árs í senn. Ekki er veittur styrkur til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.

Við hjá SSNV höfum tekið saman nokkra punkta til að aðstoða við umsóknargerð:

  • Lesið úthlutunarreglur VEL og VANDLEGA – þær segja til um hvernig verkefni eru styrkt. Stundum kemur í ljós að einstakar umsóknir eða hugmyndir passa ekki í sjóðinn
  • Skoðið fyrri úthlutanir sjóðsins og athugið hvort að keimlík verkefni hafi áður hlotið styrk
  • Betur sjá augu en auga! Fáið einhvern til að lesa umsóknina yfir og koma með ábendingar. Ráðgjafar SSNV eru boðnir og búnir til að aðstoða
  • Þetta er samkeppni um fjármagnið sem er í boði, þið þurfið að selja úthlutunarnefndinni hugmyndina ykkar

Ef skoðaðar eru fyrri úthlutanir úr sjóðnum má sjá að styrkir sem veittir eru í verkefni eru oftast á bilinu 100.000-800.000. Gott er að hafa það viðmið þegar verið er að óska eftir styrkupphæð. Hafa skal jafnframt í huga að bæði umsókn og umbeðin styrkupphæð séu raunsæ.

Ráðgjafar SSNV veita aðstoð við gerð styrkumsókna. Nánari upplýsingar um ráðgjafa má finna hér að neðan.