Öflugur liðsstyrkur - nýr verkefnisstjóri fjárfestinga hjá SSNV

Magnús Barðdal hefur verið ráðinn í starf verkefnisstjóra fjárfestinga hjá SSNV. Um er að ræða tímabundið verkefni sem skilgreint var sem áhersluverkefni áranna 2020-2021 en hefur nú verið framlengt til hausts 2022. Markmið verkefnisins er að auka fjárfestingar í landshlutanum með það fyrir augum að fjölga atvinnutækifærum. Verkefnið er stutt af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu með viðaukasamningi sem undirritaður var í september 2019, sóknaráætlun landshlutans sem og sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra.

 

Magnús hefur lokið ML prófi í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Nú síðast sem útibússtjóri Arion banka á Sauðárkróki og áður sem lögfræðingur hjá Íbúðalánasjóði. Hann hefur því góða þekkingu á fjármálum og fjárfestingum sem og atvinnulífi og starfsumhverfi á Norðurlandi vestra.  ,,Ég er mjög spenntur fyrir að takast á við þetta krefjandi verkefni enda brenn ég fyrir uppbyggingu og eflingu landshlutans” segir Magnús.

 

Magnús mun hefja störf 1. september. Við bjóðum hann velkominn í hópinn og hlökkum til samstarfsins.