NORA:Næsti umsóknarfrestur er 13. mars-aðeins ein úthlutun í ár

Umsóknir skulu taka mið af skipulagsáætlun NORA 2017-2020 og taka til eftirfarandi þátta:

  • Skapandi greinar. Þar er átt við verkefni sem byggja á hugviti, hæfileikum og sköpunarkrafti og eru atvinnuskapandi. 
  • Græn orka. Grænar lausnir í orkumálum til lands og sjávar. 
  • Líf-hagkerfi (bioøkonomi). Nýsköpun og þróun sem snertir fullnýtingu afurða og sjálfbærni í matvælaframleiðslu. 
  • Sjálfbær ferðaþjónusta. Stuðli að fjölbreytni í viðkvæmu hagkerfi og að sjálfbærni. 
  • Upplýsingatækni. Mikilvægt mál til að sigrast á fjarlægðum. 
  • Velferðarþjónusta. Samstarf á svæðinu til að auka þjónustu í dreifðum byggðum. 
  • Öryggi á hafinu. Aukin skipaumferð um Norður-Atlantshaf kallar á ný úrlausnarefni.

 

Yfirlýst markmið í stefnumörkun áranna 2017-2020 er að stuðla að því að Norður-Atlantshafssvæðið og heimskautssvæðið verði aðlaðandi til búsetu. NORA leggur sérstaka áherslu á annars vegar fjölbreytni í atvinnulífi sem byggist á nýsköpun og hins vegar sjálfbæra þróun í samfélögum svæðisins.

 Fræðast má nánar um skipulagsáætlun NORA 2017-2020 á heimasíðunni, www.nora.fo

 

Á heimasíðu NORA er að finna leiðbeiningar um umsóknarferilinn undir valtakkanum „Guide til projektstøtte“.  Umsóknareyðublaðið er einnig að finna á heimasíðu NORA og senda á umsóknina rafrænt til NORA á netfangið noraprojekt@nora.fo .

 

Nánari upplýsingar og ráðgjöf má fá hjá tengilið NORA á Íslandi sem er:  Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, s. 455 5400 og netfang sigga@byggdastofnun.is