Kíkt í Kjarnann

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra loksins aftur í raunheimum og í þetta skiptið sem vinnustofa í stefnumótunarverkefni, sem nú stendur yfir. 


Vinnustofa með Hirti Smárasyni, þar sem rætt verður um orðspor Norðurlands vestra, sögu og ímynd svæðisins og gildi íbúanna sem þar búa. Markmiðið er að skerpa á ímynd svæðisins til að efla það ekki bara í þróun ferðaþjónustu, heldur einnig til að laða að fleiri íbúa, námsmenn og fjárfestingar.

Vinnustofan fer fram í HÚNAVERI miðvikudaginn 16. nóvember n.k.  á milli kl. 13 og 16.

Við viljum mjög gjarna bjóða þér að taka þátt og leggja þitt af mörkum í að skilgreina hver gildi svæðisins eru, og hver þau ættu að vera í framtíðinni. 

Boðið verður upp á kaffi og með því.

Skráning HÉR