Kaffibrennslan í Skagafirði fékk 5 millj kr styrk frá Íslandsbanka

Vala kynnir kaffibrennslu í Skagafirði á lokaviðburði Startup Storms í nóv. 2023
Vala kynnir kaffibrennslu í Skagafirði á lokaviðburði Startup Storms í nóv. 2023

Nýlega úthlutaði Íslandsbanki 14 frumkvöðlaverkefnum styrki úr frumkvöðlasjóði Íslandsbanka. Alls var úthlutað styrkjum fyrir 50 millj. króna

Verkefnið Kaffibrennsla í Skagafirði hlaut hæsta styrk sem var úthlutað eða 5 millj. kr. Á bak við verkefnið standa frumkvöðlarnir Vala Stefánsdóttir og Rannveig Einarsdóttir á Páfastöðum 2. Þær voru þátttakendur í viðskiptahraðlinum Startup Storm sem SSNV stóð fyrir í samstarfi við SSNE og Eim undir merki Norðanáttar í haust og hlutu styrk úr uppbyggingasjóði 2022.

Vala og Rannveig hafa verið með kaffi undir merkinu Kvörn sem brennt hefur verið á Stöðvafirði en á döfinni er að setja upp kaffibrennslu á Páfastöðum 2 og framleiða þar gæðakaffi. Þær ætla að feta á í fótspor smábrugghúsa með uppbyggingu sem styður við bætta kaffimenningu, nýjungar í framleiðslu, aukið framboð á gæðakaffi, fræðslu og fjölbreytt námskeið sem tengjast kaffi.

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka hefur að markmiði að hvetja til nýsköpunar og þróunar og styðja frumkvöðlaverkefni sem stuðla að þeim fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur valið að leggja sérstaka áherslu á. Það eru Menntun fyrir alla, Jafnrétti kynjanna, Nýsköpun og uppbygging og Aðgerðir í loftslagsmálum.

 Við óskum Völu og Rannveigu til innilega hamingju með styrkinn og óskum þeim góðs gegnis.

Hér má lesa meira um úthlutun úr frumkvöðlasjóði Íslandsbanka.