Hvernig geturðu náð árangri í markaðssetningu?

SSNV er þátttakandi í alþjóðlegu samstarfverkefni sem heitir Digi2market en verkefnið snýr m.a. að því að vinna með fyrirtækjum sem sýna áhuga á og sjá sér hag í því að nýta stafræna tækni í markaðssetningu til að auka markaðshlutdeild sína, hvort heldur sem er að auka sölu á núverandi markaði eða ef ætlunin er að sækja inn á nýja markaði hérlendis eða erlendis.

Samstarfsaðilar SSNV á Írlandi hafa nú tekið saman leiðbeiningar um markaðssetningarforrit sem innihalda örstutta lýsingu á virkni forritana sem og hlekki á heimasíður og verðskrár. Skjalið verður uppfært eftir því sem meiri upplýsingar bætast við.

Hægt er að nálgast skjalið íslenskað hér á heimasíðu SSNV.