Hvatningarsjóður Kviku veitir styrki til iðn- og kennaranáms

Hvatningarsjóður Kviku hefur það hlutverk að hvetja og styrkja ungt fólk til iðn- og kennaranáms. Markmið sjóðsins er að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og kennaranáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf en skortur er á slíku starfsfólki og er sá skortur víða orðinn hamlandi fyrir starfsemi fyrirtækja og skóla. Sjóðurinn veitir styrki fyrir allt að 10 milljónum króna árlega, en miðað er við að einstaka styrkir séu frá 500.000 til 1.000.000 króna. 

Sjóðurinn var stofnaður árið 2020 og tekur við af Hvatningarsjóði iðnnema, stofnaður 2018 og Hvatningarsjóði kennaranema, stofnaður árið 2019.

Samstarfsaðilar Kviku í Hvatningarsjóðnum eru Samtök iðnaðarins og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Umsókarfrestur er til og með 30. apríl nk.

 

Nánari upplýsingar má finna hér.