Gagnvirkur sýndarveruleiki með 360° - Vörusmiðja Biopol

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra taka þátt alþjóðlegu samstarfsverkefni sem heitir Digi2Market. Verkefninu er ætlað að taka á ýmsum áskorunum sem fyrirtæki á jaðarsvæðum kunna jafnan að glíma við, svo sem smæð markaðar, fjarlægð frá markaði og einangrun. Verkefnið er fjármagnað að hluta til af Norðurslóðasjóði, en það er atvinnu- og byggðaþróunarsjóður sem er ætlað að stuðla að samstarfsverkefnum sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum viðfangsefnum samstarfslandanna.

 

Atvinnuráðgjafi SSNV, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, hefur undanfarna mánuði unnið með íslenskum þátttakendum í verkefninu Digi2market að efnissköpun fyrir markaðssetningu með 360 gráðu myndum. Einn af íslensku þátttakendunum er Vörusmiðja Biopol.

 

Um Vörusmiðjuna

Vörusmiðjan er 104 fm aðstaða til leigu fyrir þróunarvinnu, framleiðslu, námskeiðahald og til einkanota. Aðstaðan er vel til þess fallin að framleiða og þróa vöru. Allur aðbúnaður er hannaður með það í huga að hann stuðli að góðu og heilnæmu vinnuumhverfi fyrir framleiðendur.

Hitastiginu í vinnslurýminu er hægt að stýra sem kemur sér vel þegar unnið er með viðkvæmt hráefni. Tæki og borð eru á hjólum, þannig að það er auðvelt að útbúa vinnslulínur, einnig er leyfilegt að koma með sín eigin tæki. Verkefnastjóri Vörusmiðjunnar veitir ráðgjöf á öllum stigum ferlisins, frá vöruþróun til markaðssetningar. Hlífðarfatnaður er á staðnum, sloppar, skór, stígvél, svuntur, hanskar og hárnet. Kaffistofa er á staðnum m.a. með ísskáp, örbylgjuofn, brauðrist og kaffivél. Hægt er að leigja aðstöðuna hálfan eða heilan dag. Nánari upplýsingar um verð og bókanir má finna á heimasíðu Vörusmiðjunnar

 

Gagnvirkur sýndarveruleiki

Vörusmiðjan er staðsett á Skagaströnd á Norðurlandi vestra, 20 kílómetra frá hringveginum. Væntanlegir viðskiptavinir gætu haft áhuga á að skoða aðstöðuna áður en til leigu kæmi, til að tryggja að aðstaðan og tæki til framleiðslu myndu fullnægja þörfum þeirra. Það gæti reynst einhverjum erfiðara að koma við sökum fjarlægðar. Gagnvirkur sýndarveruleiki gerir fólki kleyft að skoða aðstöðuna heiman frá sér. Í þessari sýndarveruleikalausn er hægt að sjá hvernig aðstaðan lítur út, hvaða framleiðslutæki eru á staðnum og hver er framleiðslugeta hvers tækis.

Hérna má sjá lausnina sem unnin var með Vörusmiðjunni.