Fyrirtækjastyrkur - Markaðsstyrkur

Tækniþróunarsjóður auglýsir Markaðsstyrk. Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.

Næsti umsóknarfrestur er 15. september 2016, kl. 16:00. Nánari upplýsingar hér