Framúrskarandi verkefni 2020

SSNV kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2020. Þetta er í annað sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra í upphafi árs 2021.

Viðurkenningar fyrir árið 2019 féllu í skaut Sýndarveruleika ehf og Kakalaskála. Sjá nánar hér.

Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:

  1. Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
  2. Verkefni á sviði menningar.

Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum.

Tekið er við tilnefningum til miðnættis 21. desember 2020 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti.

Reglur um viðurkenningarnar er að finna hér.