Barnið hefur fengið nafnið ÚTIBÚIÐ

Á dögunum auglýstum við eftir tillögum að nafni á skrifstofusetur sem sett hefur verið upp í húsnæði Landsbankans, Höfðabraut 6, á Hvammstanga.
Okkur bárust fjölmargar tillögur og kunnum við öllum þeim sem sendu inn hugmynd bestu þakkir fyrir.
ÚTIBÚIÐ er nafnið sem varð ofan á - enda skemmtileg vísun, annars vegar í þá starfsemi sem verið hefur í húsnæðinu um árabil og verður áfram. Hins vegar vísar nafnið í að fyrirtæki og stofnanir geta sett upp sín útibú í aðstöðunni.
Sá sem kom með þessa tillögu hefur fengið afhent gjafabréf fyrir 2 á Sjávarborg en viðkomandi vill ekki láta nafns síns getið og virðum við það að sjálfsögðu.
Skrifstofur SSNV hafa verið fluttar í Útibúið.
Við bjóðum til opins húss fimmtudaginn 3. júní kl 16-18. Þar gefst tækifæri til að skoða aðstöðuna og kynna sér starfsemi SSNV.
Verið öll velkomin - til að hægt verði að fylgja öllum sóttvarnarreglum vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn hér á fb https://fb.me/e/BiIfDMPJ