Auður ráðin sem verkefnastjóri áfangastaðaáætlunar hjá Markaðsstofu Norðurlands á Sauðárkróki

Í sumar auglýsti Markaðsstofa Norðurlands eftir umsóknum í starf verkefnastjóra áfangastaðaáætlunar, með starfsstöð á Norðurlandi vestra. Starfið felur í sér náið samstarf við ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og uppbyggingu áfangastaðarins.

Auður Ingólfsdóttir hefur verið ráðin í starfið og kemur inn í teymi MN í lok september, en hún mun starfa á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki.

Í starfinu felst meðal annars að innleiða og framkvæma áfangastaðaáætlun, stefnumótun, vöruþróun og nýsköpun í samstarfi við ferðaþjónustuna og þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu. Auður er með meistaragráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands, diplóma í ferðafræði frá Menntaskólanum í Kópavogi og bakkalárgráðu í leiklist og leikstjórn frá Rose Bruford háskólanum í Bretlandi.

Markaðsstofa Norðurlands hefur starfað frá árinu 2003 en skrifstofan er samstarfsvettvangur Norðurlands í ferðamálum. Helsta hlutverk MN er að samræma markaðs- og kynningarmál norðlenskrar ferðaþjónustu gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum. Markaðsstofa Norðurlands gengir hlutverki áfangastaðastofu Norðurlands.