Ábendingar um fyrirhugaða lagnaleið Holtavörðuheiðarlínu 1

Nú stendur yfir vinna við ákvörðun á lagnaleið Holtavörðuheiðarlínu 1. Landsnet leggur sem fyrr áherslu á viðtækt samráð og var til þess stofnað verkefnaráð sem er til ráðgjafar um verkefnið. Opnuð hefur verið kortasjá þar sem hægt er að skrá ábendingar, hugmyndir og áhyggjuefni varðandi línuna og leið hennar. Er kortasjáin opin almenningi á fólk hvatt til að setja fram sínar ábendingar. Kortasjáin verður opin til 19. júlí.

 

Kortasjáin ásamt leiðbeiningum er aðgengileg hér: https://hh1.netlify.app/