20 umsækjendur um starf atvinnuráðgjafa á sviði nýsköpunar

Á dögunum var auglýst laust til umsóknar starf atvinnuráðgjafa á sviði nýsköpunar. Umsóknarfrestur var til 30. janúar. Alls bárust 20 umsóknir um starfið og er ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga á störfum hjá samtökunum.

 

Úrvinnsla umsókna stendur yfir og má gera ráð fyrir að henni ljúki síðar í mánuðinum.