Auglýsing frá Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum

Árið 2017 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar. 

  • Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni  norden.se            
  • Umsóknarfrestur er til 1. mars 2017 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.

Styrkjum verður úthlutað í apríl nk.