Ársþing SSNV 2024 - 11. apríl 2024

32. Ársþing SSNV verður haldið fimmtudaginn 11. apríl 2024. Að þessu sinni verður ársþing haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi í Húnabyggð. Húsið opnar með morgunhressingu kl. 9.00. Dagskrá hefst með þingsetningu  kl. 9.30 og stendur til 14.30.

Á ársþingi SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. 

Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið. Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna.

Dagskrá og önnur fundargögn verða send út á þingfulltrúa eigi síðar en 4. apríl.

Skráning fer fram hér.

 

Mynd tók Róbert Daníel Jónsson