5 hrossaræktarbú á Norðurlandi vestra tilnefnd til ræktunarverðlauna

5 hrossaræktarbú á Norðurlandi vestra tilnefnd til ræktunarverðlauna

Efri-Fitjar, Lækjamót, Prestsbær, Steinnes og Þúfur eru tilnefnd í ár og óskum við hjá SSNV þeim innilega til hamingju með tilnefninguna. Ekki amalegt að sjá dreyfinguna hér í landshlutanum.

 Nú hefur verið tilkynnt hvaða hrossaræktarbú fagráð í hrossrækt tilnefnir til ræktunarverðlauna bændasamtaka Íslands í ár. Verðlaun verða veitt á fagráðstefnu hrossaræktarinnar laugardaginn 3. des.

Þau bú 12 búð sem tilnefnd eru til ræktunarverðlauna Bændasamtaka Íslands árið 2023 eru í stafrófsröð:

Árbær, Vigdís Þórarinsdóttir, Maríanna Gunnarsdóttir, Guðmundur Bæringsson og fjölskyldur

Efri-Fitjar, Gréta Brimrún Karlsdóttir, Gunnar Þorgeirsson, Tryggvi Björnsson og fjölskylda

Fákshólar, Helga Una Björnsdóttir og Jakob Svavar Sigurðsson

Fet, Hrossaræktarbúið Fet

Haukagil á Hvítársíðu, Ágúst Þór Jónsson og Þóra Áslaug Magnúsdóttir

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble

Lækjamót, Sonja Líndal Þórisdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Vigdís Gunnarsdóttir, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þórir Ísólfsson og Elín Rannveig Líndal

Prestsbær, Inga og Ingar Jensen

Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir

Steinnes, Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir, Jón árni Magnússon og Berglind Bjarnadóttir

Sumarliðabær, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir

Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Heimild Bændasamtökin