Skýrsla framkvæmdastjóra SSNV 2026

← Til baka á síðu 34. ársþings SSNV


Skýrsla framkvæmdastjóra SSNV fyrir árið 2025, flutt af Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur á 34. ársþingi SSNV á Laugarbakka 8. apríl 2026.


Þingforseti, ágætu fundargestir,


Eins og þið þekkið öll spannar starfssvæði SSNV allt frá Almenningsnöf í austri að Stikuhálsi milli Bitru og Hrútafjarðar í vestri. Samtökin eru hagsmuna-, þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna. Samkvæmt nýjustu tölum frá þjóðskrá búa hér í dag rúmlega 7.500 manns og hér er að finna samhent samfélög, dýrmætan mannauð og svæði sem býr yfir miklum auðlindum og góðum aðstæðum til atvinnuuppbyggingar. Landshlutinn stendur á traustum grunni í hefðbundnum atvinnugreinum á borð við landbúnað, sjávarútveg og matvælavinnslu, en á sama tíma vaxa hér ný tækifæri í nýsköpun, ferðaþjónustu og skapandi greinum.


Árið 2025 var viðburðaríkt starfsár hjá SSNV sem leið alltof hratt. Verkefnin voru mörg og fjölbreytt, sum sýnileg, önnur síður, en öll unnin með það að markmiði að styrkja samfélög, atvinnulíf og innviði Norðurlands vestra.


Starfsfólk SSNV vann á árinu að fjölda verkefna sem snúa að atvinnuþróun, nýsköpun, samfélags- og menningarmálum, loftslags- og umhverfismálum. Sum verkefnin voru unnin í nánu samstarfi við sveitarfélögin, önnur í samstarfi við ríki, stofnanir, atvinnulíf og önnur landshlutasamtök.


Á árinu voru starfsmenn hjá SSNV, alls 7,25 ársverk, en þar af voru tveir starfsmenn tímabundið ráðnir. Sara Björk Þorsteinsdóttir hóf störf í byrjun febrúar sem verkefnastjóri farsældar og Brynja Sif Harðardóttir lét af störfum í lok febrúar. Þá lét Katrín M. Guðjónsdóttir af störfum sem framkvæmdastjóri samtakanna í lok mars. Ég vil þakka þeim kærlega fyrir gott samstarf.


Ráðgjöfin var áfram einn af hornsteinum starfsemi SSNV og voru um 2500 stundir á árinu vegna atvinnuþróunar og eru þá ótaldar stundirnar sem fóru í aðstoð og yfirlestur á styrkumsóknum vegna Uppbyggingarsjóðs. Á árinu leituðu til okkar einstaklingar, sprotafyrirtæki, starfandi fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög með hugmyndir og áskoranir – allt frá frumstigi hugmynda yfir í stærri þróunar- og samstarfsverkefni og tengt hagsmunagæslu. Ráðgjöfin er veitt um allan landshlutann á grunni samnings við Byggðastofnun, en ekki síður byggir hún á þekkingu, reynslu og tengslaneti starfsfólks SSNV, sem starfar í dag á þremur starfsstöðvum á Norðurlandi vestra.


Við þróuðum einnig áfram stuðning okkar við frumkvöðla og nýsköpun, til að mynda í samstarfi við SSNE, Drift EA, Hraðið á Húsavík, Háskólann á Hólum, Háskólann á Akureyri, Eim og önnur landshlutasamtök. Þar vil ég sérstaklega nefna hraðalinn Startup Landið sem við héldum í samstarfi við önnur landshlutasamtök á landsbyggðinni, en lokaviðburður hraðalsins var haldinn í Hofi á Akureyri. Þá má nefna Norðansprotann – verkefni sem hefur eflt aðgengi að nýsköpunarstuðningi og skapað tækifæri fyrir frumkvöðla á Norðurlandi. Norðansprotinn fékk til að mynda 22 umsóknir, en átta verkefni fengu tækifæri til að kynna sig fyrir dómnefnd.


Það er margt jákvætt að gerast á Norðurlandi vestra og víða má sjá merki um uppbyggingu og nýsköpun. Ferðaþjónusta hefur verið að styrkjast, þar sem lögð er áhersla á að þróa fjölbreyttari upplifun fyrir gesti allt árið um kring, meðal annars með viðburðum, náttúruupplifunum og aukinni þjónustu utan háannar. Verkefni á borð við uppbyggingu viðburða, eins og hlaupaviðburði og menningarviðburði, endurspegla þessa þróun.


Í landshlutanum eru einnig spennandi tækifæri tengd orku og auðlindanýtingu. Áform um uppbyggingu grænorkutengdrar starfsemi, þar sem samspil jarðhita, raforku og kalds vatns getur skapað grundvöll fyrir nýja atvinnustarfsemi, sýna vel þá möguleika sem svæðið hefur.


Matvælaframleiðsla og nýsköpun í tengslum við hana er einnig áberandi, hvort sem er í þróun á nýjum afurðum úr landbúnaði, áframvinnslu eða verkefnum sem tengja saman rannsóknir og framleiðslu. Þá má einnig sjá áhugaverð verkefni í iðnaði, þar sem verið er að nýta húsnæði og þekkingu til að framleiða einingahús og aðrar lausnir sem svara þörfum landsbyggðarinnar.


Þessi þróun sýnir að Norðurland vestra býr yfir fjölbreyttum styrkleikum og sveigjanleika. Þrátt fyrir áskoranir sem fylgja dreifðum byggðum og fjarlægð frá stærstu mörkuðum, er svæðið að byggja upp atvinnulíf sem nýtir staðbundnar auðlindir, þekkingu og samvinnu – og er þannig vel í stakk búið til að taka þátt í framtíðarvexti Íslands.


Við höfum sömuleiðis verið að þétta samstarfið við Íslandsstofu en þau hafa verið að leita til landshlutasamtakanna hvað varðar innviðaupplýsingar um landshlutana. Við höfum því hafið vinnu við að taka saman fjárfestaupplýsingar um svæðið og komum til með að vera í góðu sambandi við sveitarfélögin.


Við þurfum að hafa á hreinu:


hvaða lóðir eru í boði, hvort öruggt rafmagn sé til staðar, hvernig fjarskiptatengingarnar eru, og hvort samgöngur og grunnkerfi séu í stakk búin til að styðja við starfsemi þeirra.


Stjórn SSNV hefur lagt áherslu þar á að ríkisstjórnin sýni vilja sinn í verki og styðja uppbyggingu innviða og atvinnuvega á landsbyggðinni.


Leiðarljós í okkar vinnu er Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Í gegnum Sóknaráætlunina höfum við áfram stutt við fjölbreytt verkefni um landshlutann, bæði með styrkjum úr Uppbyggingarsjóði og í gegnum áhersluverkefni. Þannig bárust alls 130 umsóknir í Uppbyggingarsjóð fyrir árið 2025. Alls var sótt um 239 milljónir eða þar um bil, en að þessu sinni var 60 m.kr. úthlutað til 63 verkefna. Þá samþykkti stjórn 17 áhersluverkefni á árinu sem hlutu rúmlega 51 m.kr. Það voru því alls 111 m.kr. sem var úthlutað til verkefna á grunni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra á árinu.


Eins og alltaf fólst stór hluti af vinnu SSNV á árinu í hagsmunagæslu. Við áttum regluleg samskipti við þingmenn, ráðuneyti og stofnanir ríkisins um málefni sem skipta Norðurland vestra sköpum – þar á meðal innviði, samgöngur, orkumál, heilbrigðismál og menntamál. Þetta er vinna sem er oft ósýnileg og á sér stað í gegnum samtöl og tölvupósta sem sjást ekki alltaf út á við, en þetta er vinna sem krefst þrautseigju og samhæfingar – og er óumdeilanlega ein mikilvægasta stoð starfsemi SSNV. Stjórn SSNV sendir til stjórnvalda umsagnir og bókanir sem snerta allt frá samgöngum til heilbrigðisþjónustu. Við erum í samstarfi við stofnanir ríkisins, Sambandið og önnur landshlutasamtök, og við vinnum stöðugt að því að koma sjónarmiðum svæðisins á framfæri gagnvart ráðamönnum þjóðarinnar og öðrum hagsmunaaðilum.


Fjölmörg önnur verkefni mætti auðvitað nefna hér og ég hvet ykkur til að kynna ykkur sérstaklega í ársskýrslunni okkar, og leyfi ég mér að nefna þar á meðal stofnun Farsældarráðs Norðurlands vestra og áhersluverkefnið Ungt fólk á Norðurlandi vestra.


Þegar ég horfi yfir starfsárið 2025 situr það sterkast eftir að þó verkefnin eru ólík í eðli sínu, eiga þau það sameiginlegt að snúast um fólk, samfélög og okkar dýrmæta landshluta Norðurland vestra og þegar horft er fram á veginn blasir við áframhaldandi þörf fyrir samvinnu.


Þegar við horfum fram á veginn á árinu 2026 þá er því ekki að leyna að þrátt fyrir fjölmörg tækifæri stöndum við einnig frammi fyrir skýrum áskorunum og þær eru misstórar eins og þið þekkið allra best. En ef ég horfi á landshlutann í heild þá er stærsta áskorunin nú sem áður að tryggja að innviðir séu til staðar svo að svæðið geti vaxið – raforkuöryggi, flutningskerfi, fjarskipti og samgöngur eru grundvöllur þess að atvinnulíf og samfélög geti þróast áfram.


Jafnframt blasir við samkeppni um fólk og fjármagn, þar sem mikilvægt er að tryggja að Norðurland vestra sé ákjósanlegur kostur fyrir íbúa, fyrirtæki og fjárfesta. Þá krefst óvissa í ytra umhverfi, meðal annars í efnahags- og öryggismálum, þess að við séum samstillt, framsýn og tilbúin að bregðast hratt við breytingum.


Að lokum er það viðvarandi verkefni að tryggja að sjónarmið og hagsmunir landsbyggðarinnar séu sýnileg og virt í stefnumótun ríkisins, og að ákvarðanir séu teknar með heildarhagsmuni landsins að leiðarljósi.


Sveitarstjórnarkosningar eru á næsta leiti og ný stjórn SSNV tekur við í sumar. Því mun auðvitað óhjákvæmilega fylgja breytingar. En reynslan sýnir að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa burði til að vinna saman – þvert á stærð, staðsetningu og áskoranir og við munum halda áfram að styðja við það samstarf.


Að lokum vil ég þakka ykkur – kjörnum fulltrúum, sveitarstjórnum, sveitarstjórum og samstarfsaðilum – fyrir samstarfið á árinu. Ég vil þakka starfsfólki SSNV fyrir fagmennsku og elju í sínum verkefnum. Og ég vil sérstaklega þakka þeim sem eru að ljúka sinni setu í sveitarstjórnarmálum fyrir framlag sitt til starfsemi SSNV.