Skýrsla stjórnar SSNV 2026

← Til baka á síðu 34. ársþings SSNV


Skýrsla stjórnar SSNV, flutt af Einari E. Einarssyni, formanni stjórnar, á 34. ársþingi SSNV á Laugarbakka 8. apríl 2026.


Ágætu þingfulltrúar, þingmenn og aðrir gestir.


Við Sveinbjörg framkvæmdarstjóri ákváðum að þessu sinni að flytja bæði skýrslu stjórnar og fara þannig yfir það helsta sem á daga okkar hefur drifið síðasta árið.


Þegar maður sest niður og veltir fyrir sér stöðu landshlutans sem okkar landssamtök eru hagsmunasamtök fyrir, þá spyr maður sig hvort staðan hafi batnað, versnað eða staðið í stað síðustu misseri.


Við getum reynt að meta stöðuna út frá ýmsum mælikvörðum, en ef við gerum það út frá íbúaþróun síðasta eitt og hálfa árið þá hefur okkur í heild ekki fjölgað mikið, eða aðeins um rúmlega 20 manns í landshlutanum öllum frá 1. desember 2024 til 1. mars síðastliðins.


Þetta er minnsta fjölgun í einum landshluta á umræddu tímabili, en á sama tíma fjölgaði Íslendingum samkvæmt Þjóðskrá um 6.500. Af þessum eina mælikvarða finnst mér nokkuð ljóst að við getum ekki verið að öllu leyti sátt við þróunina.


Það er þó jákvætt að á sama tímabili er atvinnuleysi varla mælanlegt í landshlutanum og í raun er staðan sú að marga atvinnurekendur vantar fólk í alls konar vinnu; leikskóla, smíðavinnu, vinnu til sveita og víðar.


Okkur vantar því fyrst og fremst fólk í landshlutann, fólk sem hefur trú á tækifærunum sem hér eru, og er á sama tíma tilbúið að taka það skref að flytja á stað þar sem hagsveiflan hefur verið minni en á öðrum stöðum, en samt tækifæri til staðar.


Við í stjórn SSNV höfum, frá því við tókum við, reynt að vekja athygli á stöðu landshlutans með ýmsum ályktunum og áskorunum sem við höfum sent frá okkur um mikilvægi þess að hugað væri að sértækum aðgerðum sem hefðu það að markmiði að fjölga íbúum og auka atvinnu. En hvernig á að meta svörin og viðbrögðin?


Við reyndum lengi vel að fá fund með forsvarskonum þeirra þriggja flokka sem mynda núverandi ríkisstjórn, en að lokum var okkur hafnað og bent á að tala við Innviðaráðherra. Í kjölfarið áttum við ágætan fund með innviðaráðherra, Eyjólfi Ármannssyni og hans aðstoðarfólki, þar sem við fórum yfir stöðuna og bentum á leiðir og tækifæri til sóknar og atvinnuuppbyggingar.


Við bentum líka á það misrétti sem við teljum að landshlutinn verði fyrir við t.d. úthlutun á ríkisstörfum, en eins og bent hefur verið á áður þá fjölgaði ríkisstörfum hér í landshlutanum um 23 frá árinu 2020 til 2024, en á sama tímabili fjölgaði þeim um rúmlega 3.500 á landinu öllu.


Mín skoðun er sú að ein besta byggðaaðgerð sem hægt væri að fara í fyrir landshluta eins og okkar, væri að beita skattkerfinu og lánakerfi Byggðastofnunar með sértækum hætti á okkar svæði og þá öðrum, sem skilgreind væru sem hægvaxta svæði.


Nota skattkerfið þannig að það virki hvetjandi fyrir fólk og fyrirtæki að koma í landshlutann og setjast hér að og stunda atvinnu og/eða koma með fyrirtæki sem fengju þá skattatengdar ívilnanir til einhverra ára meðan þau væru að vaxa og koma sér á legg. Byggðastofnun gæti t.d. veitt nánast vaxtalaus lán inn á viðkvæmustu svæðin um leið og ríkið slægi af sköttum einstaklinga og fyrirtækja. Ég tel að ríkið og ríkisstjórnin eigi að prófa þennan möguleika til að efla og jafna búsetu í landinu.


En ein af megin forsendum þess að við getum fjölgað fólki er að hafa nægt magn af hentugum og hagkvæmum íbúðum til leigu eða kaups. Hlutdeildarlánakerfið hefur ekki nýst okkar landshluta til íbúðauppbyggingar, en frá stofnun þess hafa einungis tvö lán komið í landshlutann af þeim 1.130 lánum sem búið var að veita um síðustu áramót. Við í stjórn SSNV komum okkar athugasemdum og ábendingum á framfæri þegar verið var að breyta lögum um hlutdeildarlán síðastliðið haust, en í stuttu máli var ekki tekið tillit til þeirra á nokkurn hátt, okkur til hagsbóta.


Öll sveitarfélögin hér eru aðilar að Brák íbúðafélagi, sem er gott, ásamt því að tvö þeirra eru aðilar að Bríet leigufélagi. Brák íbúðafélag á núna íbúðir í öllum sveitarfélögunum, sem er jákvætt, en ég vil engu að síður nota tækifærið og hvetja sveitarstjórnir til að nýta sér enn frekar bæði íbúðafélögin Brák og Bríet til frekari uppbyggingar. Fram undan er umræða meðal eigenda þessara félaga um hugsanlegan samruna þeirra og eru það hugmyndir sem mér hugnast vel á þessum tímapunkti, metið út frá þeim gögnum sem lögð hafa verið fram, en ég hef setið í Fulltrúaráði Brákar fyrir hönd landshlutans síðustu mánuði. Hugmyndir um samruna/sameiningu félaganna verða að óbreyttu kynntar sveitarfélögunum á næstu dögum og hvet ég ykkur sem eigið aðild að þessum félögum að skoða þessar hugmyndir með opnum huga og keyra svo á að nýta hið sameinaða félag til meiri uppbyggingar en nú þegar er búið, eða er verið að gera. Það mun styrkja landshlutann og hvetja fólk til að flytja hingað.


Í stjórn SSNV hefur einnig oft verið rætt og ályktað um samgöngumál en því miður bíðum við enn eftir samþykktri samgönguáætlun frá Alþingi. Eins og þau drög litu út þegar við höfðum þau síðast til umsagnar þá þótti okkur hlutur landshlutans til endurbóta á vegakerfinu rýr, ef frá eru taldar vonir um að göng frá Fljótum til Siglufjarðar komist þar inn. Ég ætla ekki að fjölyrða meira um vegakerfið hér en við höfum oft ályktað um það, en því miður vantar enn verulegt fjármagn til viðhalds og enduruppbyggingar á þjóðvegakerfinu í landshlutanum í heild.


Við í stjórninni höfum líka á síðustu mánuðum fjallað um aðra innviði en samgöngur. Við höfðum og höfum enn þá áhyggjur af stöðu farsímasambandsins í landshlutanum, en nú liggur fyrir að slökkt verður á síðustu 3G sendunum hér í byrjun maímánaðar. Við áttum á síðasta ári fund með fulltrúum Fjarskiptastofu og ræddum áhyggjur okkar. Hvort sem sá fundur eða aðrar ályktanir sem komu frá sveitarfélögunum náðu í gegn þá var lokun sendanna frestað um nokkra mánuði meðan fjarskiptafyrirtækin voru að eigin sögn að tryggja „minni“ þjónustuskerðingu með fjölgun annarra senda.


Við höfum einnig rætt um flutningskerfi raforku og mikilvægi þess að orkuframboð væri nægjanlegt á svæðinu öllu, en hluti af núverandi byggðalínu í landshlutanum er elsti hluti kerfisins í dag. Við fengum verkfræði- og ráðgjafafyrirtækið Lotu til að gera úttekt á stöðu flutningskerfa í landshlutanum og var skýrslu skilað til okkar í nóvember. Í skýrslunni má sjá ýtarlega greiningu á núverandi stöðu kerfisins ásamt áhrifum mismunandi útfærslna á orkuframboð í landshlutanum við mismunandi útfærslur á línuleiðum. Skýrslan var kynnt stjórn og send öllum sveitarfélögum til frekari upplýsinga í þeirri skipulagsvinnu sem nú er í gangi um lagningu byggðalínunnar og annarra raflína í landshlutanum.


Við höfum líka látið vinna fleiri skýrslur fyrir okkur sem eiga að nýtast sveitarfélögunum og má þar nefna samantekt um mögulegar leiðir til nýtingar á lífrænum úrgangi, en ljóst er að sú söfnun er landstórum dreifbýlissveitarfélögum dýr. Þessi skýrsla hefur líka verið send sveitarfélögunum og er að nýtast vel í umræðu um þær leiðir sem hægt er að fara í eyðingu á honum innan þess lagaramma sem við lifum við frá Alþingi.


Það er líka rétt að nefna það hér að nú er um eitt og hálft ár síðan við gerðumst aðilar að samstarfsverkefninu Eim ásamt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Landsvirkjun, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur. Í stórum dráttum ganga verkefni Eims út á að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi. Verkefnin hingað til eru fjölmörg og má þar fyrst nefna vinnu sem er í gangi um bætta nýtingu á lífmassa sem er í fráveitu fyrirtækja og einstaklinga. Unnið er með bændum að orkuskiptum í landbúnaði og bættri nýtingu affallsvatns til t.d. sniglaræktunar svo eitthvað sé nefnt. Ég vona að það verði sátt um að SSNV verði áfram aðili að þessu samstarfsverkefni en núverandi samningur um það rennur út í lok árs 2026.


Fjölmargt fleira væri hægt að telja upp sem stjórn SSNV hefur haft aðkomu að á síðustu mánuðum með bæði umsögnum og fundum, og er ég þá ekkert farinn að ræða um þau fjölmörgu verkefni sem starfsmenn SSNV vinna að dagsdaglega tengd Sóknaráætlun landshlutans eða í atvinnuráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja sem eru að reyna að efla og gera atvinnulífið hér fjölbreyttara. Ég læt Sveinbjörgu um það.


En ég vil árétta að þrátt fyrir ýmis verkefni og ýmsa erfiðleika sem þarf að leysa svo hagvöxtur hér og fólksfjölgun verði ásættanleg, þá tel ég það allt framkvæmanlegt og vera verkefni sem við í sameiningu eigum að geta leyst. Það eru tækifæri og það eru möguleikar, en til að hjólin snúist hraðar þurfa bæði sveitarfélög og ríki að koma að málum og vinna í sameiningu að breyttri þróun íbúafjölda og hagvaxtar.


Að lokum vil ég fyrir hönd stjórnar þakka framkvæmdastjóra og öðrum starfsmönnum samtakanna fyrir gott starf og samstarf. Að mínu mati höfum við á að skipa öflugu og farsælu starfsfólki sem hefur lagt sig fram um að bæta samfélagið á Norðurlandi vestra.


Einar E. Einarsson

Formaður stjórnar SSNV